Bloggfærslur mánaðarins, maí 2010

Af eigin rammleika.

Ég er hálf slæpt eftir síðustu daga og vikur. Það er álag að vera í framboði! En mikið dj... er það nú samt skemmtilegt.  Það besta er auðvitað fólkið. Maður er alla daga starfandi með skemmtilegu fólki. Og eins og allir sem mig þekkja vita, þá er það mitt uppáhald. Þ.e.a.s. fólk. Ég leyni því ekki að ég var spæld yfir því að við skyldum ekki ná meirihluta.  Og það er líka í góðu lagi að vera spæld. 

 Ólíkt mörgum frambjóðendum ætla ég ekki að tala um varnarsigur né reyna að benda á það hvernig mótframboðið „hafði af okkur atkvæðin,“ eins og virðist vera viðtekin venja í stjónmálum og stór partur af því líklega hversu litlar vinsældir „alvöru“ stjórnmálamenn búa við. Það er nefnilega alveg komið gott af þess háttar spekúleringum í þjóðfélaginu. Ef maður vinnur ekki, þá tapar maður. Það er svo einfalt. Og þá er að skoða ofan í saumana á því af hverju tapið stafar, læra af því og nýta reynsluna.

Ég hitti ísfirska konu í sundi í dag og við fórum að spjalla svona eins og maður gerir í heita pottinum.  Og á meðan rann upp fyrir mér hvað ég er lánsöm að fólk skuli treysta mér til að starfa fyrir sig. Ég er ekki héðan og einu ættingjar mínir hér í bænum eru börnin mín. Þó hlaut ég 3. Sæti í opnu prófkjöri Bæjarmálafélagsins. 20 manna forval og hátt í hundrað manns kusu. Og ég marði það inní bæjarstjórn.  Án þess að nokkur skrifaði fyrir mig framboðsræðu. Án þess að eiga nokkurn einasta frænda eða frænku sem skyldleikans vegna gaf mér atkvæði sitt. 

 Í augum margra og jafnvel flestra Bolvíkinga, er ég „utanbæjarmanneskja.“  Ég hef bara búið hér í 8 ár. Þar af hef ég einungis verið í 2-3 ár á bolvískum vinnumarkaði.  Í raun mætti því segja að ég hefði hér lítið bakland. En það er þó alls ekki rétt. Hér á ég augljóslega stórt og mikið bakland. Ekki svo að segja að öllum líki við mig? Enda geri ég ekki kröfu til þess. Mér líkar heldur ekkert við alla.  Flesta þó, sem betur fer!

 Mikið  fjarskalega er ég glöð og sátt í dag með að geta sagt; ég komst í bæjarstjórn Bolungarvíkur á mínum eigin forsendum. Vegna minna eigin verðleika! Mér finnst þetta hljóma ákaflega fallega á ferilskránni! J Ekkert sérlega hógvært, -en samt töff!

Bæjarfulltrúinn býður góða nótt ......


Til kjósenda í Bolungarvík

 

Kosningabaráttan hefur að miklu leyti snúist um hugtakið "ábyrg fjármálastjórnun." Við ákváðum í byrjun samstarfs okkar, við sem skipum K-listann, að fela fólkinu í bænum alfarið að meta það hvort það fráfarandi bæjarfulltrúar okkar hefðu í raun borið alla þá ábyrgð á erfiðri fjárhagsstöðu bæjarins eftir tæplega hálft kjörtímabil, sem í veðri hefur verið látið vaka. Við sjálf vitum betur. Og fögnuðum því þegar þessir sömu fráfarandi bæjarfulltrúar sendu öllum heimilum í bænum bréf sem útskýrði hvað í raun gekk á.

 En við erum nýtt fólk og okkur er treystandi.

Exelskjöl og skipurit eru mér óþekkt stærð. Og það er líka í góðu lagi. Vegna þess að með mér eru menn eins og t.a.m. Ketill Elíasson sem hefur rekið sitt fyrirtæki farsællega árum saman og það með mjög miklum ágætum. Arnþór Jónsson, sem hefur sýnt að hann er maður sem ekki gefst upp heldur lítur á áföll sem merki um nýtt tækifæri til þess að skapa nýjan grundvöll. Þar fer maður sem ekki básúnar sína sigra, þó margir séu og meiri en okkar margra.  OG HANN kann á exelinn! :) Jóhann Hannibalsson. Stöðuglyndur og traustur maður með hjartað á réttum stað.

 Við sem skipum efstu fjögur sæti lista Bæjarmálafélagsins, erum öll jafn ólík og dagur og nótt.  En við höfum komist að því undanfarið að við vinnum vel saman og erum hópur þar sem hvert okkar bætir annað upp. Fjölbreytileiki okkar er helsti styrkleikinn. Og við höfum öll sömu markmið; að skapa öllum Bolvíkingum þá umgjörð sem við þurfum hér til þess að byggð hér megi blómgast og dafna. Ekki með sérstaka áherslu á "eldri borgara," "öryrkja," "barnafólk." Nei, heldur alla Bolvíkinga! Svo einfalt er það. Fólk er ekki dregið í dilka. Allir eiga sama rétt, allir eiga kröfu um að lifa við félagslegt öryggi og með reisn.

Nú er þessi lesning mín að verða ansi hreint löng og kannski margir hættir að lesa. En það er tvennt sem mig langar þó að tæpa á. Fyrir fjórum árum gat fólk innan Sjálfstæðisflokks ekki unnið saman.  Þar klauf sig einn út, stofnaði framboð með öðru ágætisfólki. Einu og hálfu ári síðar gekk sami frambjóðandi í eina sæng með sínum fyrri félögum undir því yfirskyni að "umsvif Soffíu Vagnsdóttur væru orðin of mikil." Það var ekki fyrr en mun síðar, sem fjármálin urðu helsta ástæða stjórnarslitanna. Enda hafði hugmyndafræðin um umsvifin ekki fallið í góðan jarðveg og margir, þar á meðal frambjóðendur,  sögðu sig af téðum A-lista. Oddviti A-listans býður sig nú fram í 2. sætið, næst á eftir Elíasi Jónatanssyni, manninum sem hún gat ekki hugsað sér að vinna með fyrir fjórum árum.  Ég ræði um annars þá vel gefnu konu, Önnu Guðrúnu Edvardsdóttur. Konuna sem rýndi svo skemtilega í stefnuskrá okkar sem þekkt er orðið. +

Mitt minni nær lengra en fjögur ár aftur í tímann. Nú er spurning; hversu langt aftur nær minni kjósenda?

Og þá að því síðara sem ég vildi tæpa á.Ketill Elíasson, maðurinn í okkar brú, oddviti K-listans. Hann er maður sem hefur, eins og ég sagði áðan, rekið farsælt fyrirtæki í áraraðir og er þar að auki frumkvöðull. Það skal því enginn halda því fram, að Katli Elíassyni sé ekki treystandi fyrir peningum eða rekstri.  Hann hefur sýnt að svo er. Því held ég að með Ketil í brúnni, sé Bolvíkingum óhætt að treysta K-listanum fyrir „ábyrgri fjármálastjórn.“

En Ketill er ekki bara farsæll fyrirtækjarekandi. Hann er félagshyggjumaður. Réttsýnn og ber hag bæjarins fyrir brjósti. Hann er gagnrýninn og hann er sanngjarn. Umfram allt, hann er heiðarlegur. Þetta voru helstu ástæður þess að ég setti Ketil í 1. Sæti í forvali Bæjarmálafélagsins. Af því að ég treysti honum og hef mikið álit á honum.

Bolvíkingar.

Þegar þið gangið til kjörklefa á morgun, bið ég ykkur að íhuga þessi orð mín. Hvar liggur traust ykkar? Hvernig sem allt fer, þá megið þið treysta því að við, frambjóðendur K-lista, munum vinna að heill og velferð bæjarfélagsins óháð því hvort það verður í meiri, -eða minnihluta. Við höfum verið lýðræðislega kjörin til að vinna fyrir ykkur.

Ylfa Mist Helgadóttir.

Höfundur skipar 3. sæti K-lista Bæjarmálafélags Bolungarvíkur.


Kosningabaráttan

Það er ekki á hverjum degi sem maður fær ókeypis auglýsingu frá gagnframbjóðendum. :) Ákaflega áthygliverð grein sem vert er að lesa. Örfáar staðreyndavillur en þær eru leiðréttar í athugasemdunum neðst. Góða skemmtun.

Annars hef ég verið úti að ganga í blíðunni með fjórum öðrum frambjóðendum Bæjarmálafélagsins. Við tókum "fyrirtækjagöngutúr." Löbbuðum inní beitningaskúrana og fiskverkun JV og á Skýlið svo eitthvað sé nefnt. Gaman að hitta fólk og spjalla. Ég á pottþétt eftir að fara aftur niðrí JV fiskverkunina og fá að skoða vinnslusalinn og ferlið allt. Sem gömul "frystihúskerling" er ég alltaf svolítið spennt fyrir að sjá fiskvinnslusali.

Annars er bara sól og blíða dag eftir dag. Björgúlfur farinn í 10. bekkjar útskriftarferð og litlu ormarnir óþreyjufullir að komast í sumarfrí. Það er bara ég sem er búin að vera í sumarfríi frá því 10. maí!

blómakerið frá K-listanum.


Til hamingju með sjö milljóna króna viðsnúninginn, Bolvíkingar!!

Viðsnúningur í rekstri bæjarsjóð Bolungarvíkur upp á 300 milljónir króna?

 Það er mikill munur á að lesa ársreikning Bæjarsjóðs Bolungarvíkur milli áranna 2008 og 2009, alveg himinn og haf þar á milli. Maður fyllist hreinlega þakklæti yfir þeim góðu hlutum sem sitjandi meirihluti hefur áorkað eftir „björgunina“ sem mér, og líklega ykkur hinum, er í svo fersku minni. 

Sumir  vildu kalla þetta valdarán, en eftir að hafa lesið viðtal við Elías Jónatansson bæjarstjóra í BB á dögunum, ættu þeir að skammast sín og hlaupa upp um háls honum (og sjálfstæðismanna, A listamanna, Óháðra og hvað þeir nú allir heita þarna á listanum sem býður fram undir bókstafnum D) af tómu þakklæti fyrir að hafa lyft viðlíka grettistaki í bolvískum fjármálum.

Árið 2008 var niðurstaða ársreiknings rúmlega 116 milljónir króna í mínus en ársreikningur ársins 2009 er í plús upp á 179 milljónir króna.  Það er ekki von að bæjarstjórinn okkar ráði sér ekki fyrir kæti og þessu sé flaggað í óháða fjölmiðli okkar Vestfirðinga,  BB! Til hamingju við.  Viðsnúningur upp á rúmar 300 milljónir segir hann.  Og við segjum; Jei!   (reyndar reiknast mér til að hann sé upp á 295.688.000,- krónur sem gerir það tæpar 300 millur, -ekki rúmar 300 millur, en það er nú samt alveg rosalega gott. )

Auðvitað vill hann þakka þessum viðsnúningi þess að Sjálfstæðismenn í umboði A- listans sáluga, gripu í taumana á vormánuðum 2008 og hentu út sökudólgnum sem öllu var búinn að snúa á hvolf hérna í Víkinni.  En ekki hvað?

Og þó?  Vill maður kannski fyrst spyrja einhverra gagnrýninna spurninga? Viljum við rýna dýpra í málin?  Ég vildi það.  Og útkoman var þannig að ég tel mér skylt að deila henni með ykkur.

Ekki svo að maður eigi að vera að rifja upp gamlar tölur, maður á auðvitað ekki að dvelja við fortíðina, en stundum er það nauðsynlegt til að sjá hlutina í réttu samhengi.                                

Þegar sjálfstæðismenn skiluðu bæjarsjóði til nýs meirihluta árið 2006 þá skiluðu þeir ársreikningi upp á mínus 68.635.000 krónur sem framreiknast líklega eitthvað upp á rúmar 90 milljónir  ef væri það framreiknað til jafns við ársreikninginn 2008. Ennþá var félagsheimilið fræga samt við hrun og sundlaugargarðurinn álíka aðlaðandi og síberísk freðmýri. Samt var rekstarhalli? Og hann alveg þokkalegur.  Rekstrarhalli er því augljóslega vel mögulegur án nokkurra sýnilegra framkvæmda..... Það sýndu Sjálfstæðismenn okkur eftir 60 ára sögu þeirra í óslitnum meirihluta

.En hver er skýringin á þessum viðsnúningi ef rýnt er í ársreikning? 

Fyrsta skal telja aukningu á útsvari upp á 83 milljónir, (hver greiðir það?  bormenn og bolvíkingar sem eiga eftir að fá reikninginn núna 1. ágúst nk.) Aukning á fasteignaskatti upp á rúmar 11 m.kr. Óreglulegar tekjur (aðkoma ríkisins vegna samnings við eftirlitsnefndina)  163 m.kr. Að vísu lækkar framlag jöfnunarsjóðs upp á 17 m. kr. Þetta er tekjuaukning inn upp á 240 m. Kr.Fjármangsgjöld lækka milli ára upp á 48 m.kr.  (lækkun vísitölu og niðurfellinga skulda. (aðgerð ríkisins)  Og þá er komin skýringin á viðsnúningi upp á 288 m. kr.

Eftir standa því sjö millur sem sitjandi meirihluti getur hreykt sér af. Vaaaaandræðaleg stjórnarskipti færðu okkur sjö millur.

Til hamingju með 7 milljóna króna viðsnúninginn, sitjandi meirihluti!

Við getum skoðað þetta áfram.....

Sparnaðurinn af afar sársaukafullum uppsögnum bæjarstarfsmanna á síðasta ári eru smáaurar! Launakostnaðurinn lækkaði um 6 milljónir.

Tekjur hafnarsjóðs hækka milli ára um 13 m.kr. það mætti ætla að aðgerð ríkisstjórnarinnar vegna strandveiðanna hafi skilað Bolungarvíkurhöfn dágóðum tekjum?  Lífeyrisskuldbindingar lækka um 9 m.kr og inn í rekstur síðast liðins árs komu rúmar 15 milljónir frá þrotabúi EG.

Niðurstaðan er sú að viðsnúningurinn er tilkomin vegna inngripa Ríkisins sem þegar  var farið að vinna að, við meirihlutaskipti árið 2008, og eftirlitsnefndin bauð sér sjálf velkomna inn í bæjarkassann þökk sé styrkri stjórn sjálfstæðisflokksins í 60 ár hér í Bolungarvík.  Ef einhver hefur komið auga á augljós björgunarafrek AD listans  í ársreikningi Bæjarsjóðs Bolungarvikur í gjörningunum vorið 2008? - sá hinn sami gefi sig þá fram.

 

 

 


Fyrirspurn til ritstjóra Bæjarins Besta á Ísafirði.

Ég hef áður bent á í bloggskrifum mínum hversu mjög ég undrast það hvað ritstjórn Bæjarins Besta, eða www.bb.is á Ísafðirði text illa að dylja hægri slagsíðu sína. Það er ekkert athugavert við hægri slagsíðu í ritstjórn, en hún skal þá líka vera skilgreind rétt. Það er ekki alveg í takt við miðil sem skilgreinir sig sem frjálsan og óháðan, að liggja svo undir sífeldum ámæli fyrir að vera alveg algjörlega hliðhollur pólitískum öflum. Þetta orð hefur alla tíð, frá því að ég flutti hingað vestur, loðað við BB en ég hef sjaldan séð það jafn skýrt og nú. Ég bendi fólki á að lesa eldri pistil minn um þessi mál þar sem ég vísa m.a. í ítarlegt opnuviðtal við oddvita sjálfstæðisflokks Bolungarvíkur. Hann má finna hér neðar á síðunni. Þ.e pistilinn, ekki oddvitann!

Og nú, þegar líður að kosningum og frambjóðendur, ég þar á meðal, koma hugðarefnum sínum á prent og senda hinum "óháða" miðli, er alveg ótrúlegt að sjá hvernig flokkunin ræðst hjá ritstjórn Bæjarins Besta. Í dálkinn "pólitík," raðast greinar sjálfstæðisframbjóðenda en í "aðsendar greinar," sem eru neðst á síðunni, koma svo aðrar greinar. Þá er undantekin grein Magnúsar Reynis, hins skelegga, sem er núna staðsett neðst í pólitíska dálkinum. Aðrar greinar jafnaðar og vinstrisinnaðra eru neðst þó þær tengist pólitík alls ekki síður en þær sem hljóta "pólitísk" sæti á vefnum.

Því langar mig að spyrja; kæra ritstjórn, hvað er það sem ræður því hvar grein lendir á miðlinum BB? Miðlinum hafa verið sendar greinar, m.a. frá mér sjálfri, sem eru kyrfilega merktar "pólitík" en eru samt settar með "aðsendum greinum?" Hvernig flokkar ritstjórn greinar, pistla og pólitískar greinar hverja frá annarri? Mig fýsir í svör því að ég vil gjarnan senda inn grein í ykkar "óháða" miðil sem lendir í dálknum "pólitík."

Með fyrirfram þökk og von um svör:

Ylfa Mist Helgadóttir.


Af-fötlum umhverfið!

 Hvað gerir mannesku fatlaða? Hvað er það sem segir að hún sé fötluð? Hvað er fötlun? -Fötlun felst í því að lifa við einhverskonar takmarkanir í daglegu lífi.

 Í raun erum við öll fötluð á einhvern hátt. Við getum td. ómögulega málað þakið á húsunum okkar án hjálpartækja. Það mætti líta á það sem fötlun. Við getum ekki skipt um ljósaperu í götuljósum án stiga eða annars útbúnaðar. Er það ekki líka fötlun? Að vera fatlaður er í raun ekki stærsta vandamál okkar, það er umhverfið. Hvernig það tekur á fötlun okkar. Ergo: hversu fatlað er umhverfi okkar?

Ef manneskja er í hjólastól eða með göngugrind, þá eru stigar mikil fötlun. Ef manneskja er sjónskert þá er löskuð gangstétt fötlun. Ef manneskja er heilabiluð þá er umhverfi sem ekki miðar að þörfum þess hennar, mikil fötlun. Ef manneskja er einhverf, þá er óreiðukennt umhverfi alveg hrein súperfötlun fyrir viðkomandi. Og það má jafnvel ganga enn lengra. Fyrir manneskju eins og mig, er há eldhúsinnrétting agalega fötluð.  Pínulitlar buxnastærðir eru gífurlega fatlaðar!

 Ég held að við getum flest verið sammála um að fyrir þá, sem teljast „fatlaðir,“ er það umhverfið sem er í raun fatlað.  Hindranir hins „fatlaða“ eru í umhverfinu.  Til að hnykkja á því, set ég hér eftir gæsalappir um orðið „fatlaður.“

Nú eru málefni „fatlaðra“ að færast yfir á sveitarfélög frá ríkinu. Í því eru falin mikil tækifæri fyrir okkur til að efla og bæta þjónustu við „fatlaða“ og ekki síst fjölskyldur þeirra. Tækifærin eru aðalega fólgin í því að „af-fatla“ umhverfi þeirra einstaklinga sem einhverra hluta vegna búa við fatlað umhverfi.  Að tryggja að „fatlaðir“ og fjölskyldur þeirra búi við sömu lífsgæði og við sem teljum okkur ófötluð,  gerum.  tryggja að við öll búum við sjálfsögð lífsgæði. Eins og þau að geta farið ferða okkar. Að geta notið frístunda okkar. Að tekjur okkar dugi fyrir öllum lífsnauðsynjum. Að við höfum trygga búsetu. Að við höfum einstaklingsmiðaða þjónustu.  Það er hægt að halda endalaust áfram en ég læt upptalningunni lokið hér, á þessu sjálfsögðu mannréttindum.

Svæðisskrifstofa um málefni fatlaðra á Vestfjörðum hefur unnið sérstaklega vandað starf á undanförnum árum og hefur mjög gott hlutfall starfsfólks sem hefur menntað sig á einhvern hátt í þessum þjónustugeira. Það þýðir að við höfum hér marga starfsmenn á þessu sérsviði sem nauðsynlegt er að halda í. Þekkingin og reynslan má ekki glatast okkur. Það verðum við að tryggja til að stuðla áfram að „af-fötlun“ umhverfisins.

Hætt er við því að við tilfærsluna skapist óreiðukennt ástand sem rýrir þjónustuna að einhverju marki til að byrja með. Það er í okkar höndum hversu mikil eða lítil þessi rýrnun verður. Því betur sem við erum undirbúin,  þess minni hætta skapast. Þjónusta við fatlaða er góð hér, en hún má samt aldrei við því að versna. Ekki um millimeter! Hún á alltaf að batna. Markmiðin á að setja hátt. Og hækka stöðugt!

 Mannauður. ( þetta er merkilegt nýyrði, sem skyndilega er allsráðandi í tungumáli okkar og mörg okkar kannski tæpast vitum hvað merkir? ) -er dýrmætastur af öllu.  Mannauður er að mínu viti eitt af fallegustu orðunum á íslenskri tungu. Í því felst nefnilega bæði fegurð, þekking og viska, fjölbreytni og sérstaða hvers einstaklings sem er hluti af órofa heild.

Menn mega hreykja sér á hverju sem er og öllu fögru má lofa. En aðeins þeir sem eru trúir félagshyggjunni,  skilja mikilvægi hvers einstaklings, hvort sem umhverfi hans er fatlað eða ófatlað, sama hversu gamall hann er, óháð því hverrar þjóðar hann er, aðeins þeir skilja hvað felst í hugtakinu mannauður. Veit hve mikilvægt það hugtak er og vinnur í þágu þess.Aðeins á þann hátt sýnum við ábyrgð. Samfélagslega ábyrgð.

Ylfa Mist Helgadóttir.

 Höfundur skipar 3. Sæti á lista Bæjarmálafélagsins í Bolungarvík. 

Hundraðdaganefndin

Í dag (reyndar í gær, þegar þetta er ritað eftir miðnætti) fór ég í Ráðhúsið í Bolungarvík til að kynna mér niðurstöðu nefndar sem sett var á laggirnar til að vega og meta kosti sameiningu sveitarfélaganna hér á norðanverðum Vestfjörðum,  Bolungarvíkur, Ísafjarðarbæjar og Súðavíkur. Í stuttu máli, fannst mér ekkert annað hafa komið útúr þessari hugmyndavinnu í raun, annað en stór greiðsla til ráðgjafafyrirtækis í Reykjavík. Skýrslan var ekki illa unnin, alls ekki. En ég gat alls ekki komið auga á að minn heimabær myndi hagnast á sameiningunni. Óskir íbúa um sitt nærumhverfi hljóta að vega þungt á metum og ég hef ennþá ekki talað við þann Bolvíking sem vill sameiningu.

Ég bar fram eina spurningu eftir skýrslukynninguna. Hún var svohljóðandi; "Það kom fram snemma í kynningunni að reynt yrði leitast við að treysta fjölbreytni atvinnu í byggðarlögum í kjölfar þess að störf yrðu færð til eða lögð niður. Ísafjarðarbær hefur þessa reynslu eftir að hafa sameinast Flateyri, Suðureyri og Þingeyri. Hvernig gekk það upp í því tilfelli? Var reynt að stuðla að atvinnufjölbreytni í hinum smáu bæjum eftir þá sameiningu? Og tókst það?"

Halldór Halldórsson, bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar svaraði því til að engin störf hefðu horfið úr minni bæjunum á vegum stjórnsýslunnar nema störf sveitarstjóranna sjálfra. Nú er það hlutur sem ég þarf að kynna mér ítarlegar, sérstaklega í ljósi þess að síðar kom sú spurning úr sal hvort að bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar hefði ekki ítrekað reynt að flytja Grunnskóla Flateyrar til Ísafjarðar og hann svarði því til að "það hafi einu sinni komið til tals en ekki hafi verið farið útí þær framkvæmdir vegna þess að það hafi m.a. mætt miklum mótbyr foreldra." (ég tek fram að þetta er ekki orðrétt, hvorki spurning mín, né svar bæjarstjóra Ísafjarðarbæjar, en þetta er engu að síður innihald hvors tveggja.)

Nú veit ég að þessi hugmyndavinna um lokun Grunnskólans á Flateyri og flutning skólabarna þaðan og yfir á Ísafjörð hefur mun oftar komið upp. A.m.k fjórum sinnum. Svar bæjarstjóra var því ekki allskostar rétt. A.m.k skildi ég það alls ekki þannig. Í ljósi þess held ég að það sé þarfaverk að kynna sér einnig hvort frekari skerðing hafi orðið á opinberum störfum í smærri byggðakjörnum Ísafjarðarbæjar eftir sameiningu fyrrgreindra sveitarfélaga.

Nú er ég hlynnt samvinnu þessara smáu sveitafélaga á norðanverðum Vestfjörðum, svo lengi sem hún bætir þjónustu og tryggir atvinnuöryggi íbúanna. En ég er engan veginn tilbúin til að ganga að lögformlegri sameiningu Bolungarvíkurkaupstaðar við Ísafjarðarbæ. Ég trúi því að við myndum alltaf koma til með að bera það skarðan hlut frá borð,i að hagræðingin sem kynnt var í dag uppá 24 m.kr. á ársgrundvelli, borgi sig fyrir framtíð íbúanna hér í Bolungarvík.

Ég vil að Bolungarvík verði áfram sjálfstætt sveitarfélag en að við getum samt unnið að uppbyggingu þjónustu í öllum bæjarfélögunum hér á Vestfjörðum með samvinnu! Ekki sameiningu! 


VÓ, VÓ!!!

Sko, ég hef nú alveg samúð með fréttamönnum svona stundum þegar þeir gera vitleysur í tímahraki sínu. EEEENNN.... þegar farið er með fleipur í dánartilkynningu míns gamla og góða rokkgoðs þá verð ég nú bara móðguð.

Þessi bútur er tekinn úr fréttinni:" Auk þess að spila í Black Sabbath spilaði Dio með Heaven & Hell and Dio."

Uuuuu... halló? Hvað í veröldinni er Heaven and Hell and Dio? Heaven and Hell var fyrir það fyrsta ekki hljómsveit og það var ekkert AND Dio neitt. Dio var hljómsveitin sem gaf út plöturnar Dream evil og Rainbow in the dark. Snilldarverk báðar tvær og voru bókstaflega gataðar af nálinni á mínu heimili.

Mér finnst þetta ekki nokkur respekt hjá mogganum...... iss...

http://www.youtube.com/watch?v=QwX8yF8k0ls


mbl.is Ronnie James Dio látinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Já já, ég veit, ég veit...

...að ég er alltaf ferlega léleg við heimsóknirnar þegar ég fer suður. Enda á ég alltaf erindi og þau eru sjaldnast heimsóknir. Því miður. Sá dagur mun þó eflaust koma að ég hef tíma og efni til ferðalaga sem eru einungis pleasure. Og ferðalagið sem ég er að fara í núna er reyndar tóm ánægja. Því í bítið í fyrramálið skal flogið suður, -ef Eyjafjallajökull leyfir, og farið á æfingu hjá Dr.Tótu í skúrnum. Á laugardaginn ætlar hún nefnilega að halda upp á afmælið sitt,- annað hvort fertugs eða sextugs, man það aldrei, og ég ætla að syngja fyrir hana og graðka í mig veitingunum. Hún þurfti að hafa fyrir þessu blessunin, m.a. með því að punga út fyrir minn þunga rass suður og svo hýsir hún mig að auki! Það er nú ekkert smáræði. Heill sé henni háaldraðri!

Semsagt, ekki forakta mig þó ég heimsæki engan... plís.

Svo spýtir Eyjafjallajökull mér eflaust beint tilbaka aftur, verði hann í stuði, því að það eru bara tvær vikur í kosningar og nóg að gera. Í kvöld unnum við Arnþór von Geirastaðir (4.sæti) töluverða heimavinnu og ég get ekki látið hjá líða að minnast á það hversu mikill hvalreki sá maður og hans starf er fyrir Bæjarmálafélagið. Það er svo skrítið að kynnast fólki sem maður er búinn að sjá árum saman á förnum vegi en hefur einhverra hluta lítið haft saman við að sælda og komast þá að því að alveg magnaður einstaklingur er þar á ferðinni. Hann er dagfarsprúður maður hann Arnþór. Það verður ekki af honum skafið. Þess vegna er það eins og að finna falinn fjársjóð að uppgötva að undir hæversku yfirborðinu leynist eldklár og snilldarlega þenkjandi maður með rökrétta hugsun og þennan líka dásamlega húmor! Nú mætti ætla að ég hafi haldið að maðurinn væri algjör hálfv...., en það er alls ekki það! Ég bara þekkti hann ekki. Þess vegna er þetta svo mikil bónusuppgötvun fyrir mig á meðan fullt af öðru fólki hefur eflaust vitað þetta alla tíð! :) Fær mann til að hugsa hversu marga maður sér daglega án þess að gefa sérstakan gaum og hversu margir af þeim eru eflaust dásamlegasta fólk.

Maður ætti að safna fólki. Það er svo skemmtilegt.

En nú; pakka (það er víst ætlast til að maður verði eitthvað sérstaklega fínn í afmælinu) og sofa!

Ein hér í lokin af einni grenjandi sem mér skilst að sé ég sjálf...... hélt að ég hefði aldrei grenjað!

Ylfa 005


Ilmur í húsinu

Ég er með hvolfkökubrjálæði. Splæsti á mig næst-síðasta gestgjafanum sem kom út og þar eru uppskriftir af svokölluðum hvolfkökum. Ég er að prófa þriðju tegundina núna. Þær eru ótrúlega góðar. Ég ætla að fara með tvær- þrjár á fundinn í kvöld hjá Bæjarmálafélagi Bolungarvíkur og monta mig af því hvað ég er mikil húsmóðir. Vona bara að það sé ekki mikið af hundahárum í kökunum. Tíkin hérna er bókstaflega í hamskiptum og við öndum að okkur hárum, borðum hárin, sofum í þeim og klæðumst þeim utan á okkar hefðbundnu fötum. Við lifum semsagt ákaflega "loðnu" lífi núna.

Kosningabaráttan er komin á fullt og fundir öll kvöld með frábæra fólkinu. Við erum búin að halda fyrirlestrarfundi, m.a. um atvinnumál og í kvöld kemur Sóley frá Svæðisskrifstofu um málefni fatlaðra, og ræðir um flutning á þjónustu við fatlaða frá Ríki til Sveitar. Mjög spennandi verkefni, miklir fjármunir sem þarna eru að flytjast yfir og kjörið tækifæri til samvinnu byggðakjarnanna hérna á Vestfjörðum.

Svo á föstudag tek ég flugið suður, þ.e. ef Eyjafjallajökull verður á þeim buxunum, því að hin háæruverðuga Dr. Þórunn Guðmundsdóttir verður hvorki meira né minna en FIMMTUG! Heill sé henni háaldraðri! Ég fer í afmælið en svo tilbaka á mánudagsmorgun í bítið til að taka lokasprettinn í kosningabaráttunni.

Jæja, Bananahvolfkakan tilbúin, næst er það ananas og koktelber í ofninn!

Jei!


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband