Klukk í borg.

Flestir vina minna hafa bannað mér að klukka sig, enda held ég að þeir hafi fengið nóg af klukk æðinu sem gekk hér yfir heimasíðuheima fyrir nokkrum árum. Ég ætla að reyna samt, af því að Steina frænka er svo sæt og hún klukkaði mig.

Hér kemur algjörlega tilgangslaus fróðleikur um mig í átta liðum:

Ég er sultudrottning Vestfjarða fjórða árið í röð.

Og mér finnst aðalbláberjasulta best.

Ég les í að minnsta kosti klukkutíma áður en ég fer að sofa.

Ég les oft sömu bækurnar aftur og aftur.

Ég drekk frekar te en kaffi.

Samt finnst mér kaffi gott.

Ég þoli ekki að taka til.

Mér finnst samt skárst að þvo þvott.

Ég klukka: Nönnu, Togga, Sigguláru, Þórdísi, vélstýruna Önnu K., Salvöru, Júlla Theódórs og Júlla í Höfn.

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Steinunn Helga Sigurðardóttir

þú ert frábær !!!!

steina 

Steinunn Helga Sigurðardóttir, 10.7.2007 kl. 10:53

2 Smámynd: Þórdís Einarsdóttir

Ég játa fávisku mína, hvað á maður að gera þegar maður er klukkaður?

Þ 

Þórdís Einarsdóttir, 10.7.2007 kl. 22:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband