17.11.2008 | 00:56
Próf í verklegri hjúkrun.
Prófið var í dag. (sunnudag) Æfingadagurinn í gær. Ég var svo stressuð í prófinu að ég bókstaflega var SVEITT í framan! Einkuninn kom á námsskjáinn rétt í þessu: OG ÉG FÉKK NÍU!!!!!
Það þýðir að ég hef afbragðs hæfileika til að gera m.a. eftirfarandi:
Gefa stólpípu
Skipta um þvagpoka sem og önnur umgengni við þvaglegg, þurfir þú á honum að halda...
Mæla blóðþrýsting og önnur lífsmörk
taka hin ýmsu lífssýni, s.s. hráka-þvag og saursýni, stixa þau og leita að td. blóði í téðum sýnum.
Annast ýmsar almennar innhellingar í endaþarm.
Mata sjúkling
Skipta um stómapoka
Gefa neðanþvott
Og fleiri og fleiri skemmtilega hluti. Að sjálfsögðu vantar mig góða sjálfboðaliða til æfinga.
Verið ekki hrædd við að bjóða ykkur fram, ég meina... ég fékk NÍU!
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Efni
Eldri færslur
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
2007
Bloggvinir
- bumba
- steina
- matthildurh
- juljul
- snorris
- krissa1
- rasan
- fjallakor
- katagunn
- sverrir
- daglegurdenni
- vilborgv
- vefritid
- vertinn
- bryndisfridgeirs
- harpao
- hallasigny
- gudnim
- rocksock
- skodun
- skjolid
- marsibilkr
- grazyna
- tolliagustar
- helengardars
- eggmann
- biggibix
- hugdettan
- glomagnada
- ringarinn
- laufeywaage
- gretaskulad
- gunnipallikokkur
- gudrunstella
- bifrastarblondinan
- tamina
- trukkalessan
- jonberg
- sigynhuld
- aslaugas
- heimskyr
- husmodirin
- malacai
- aloevera
- kruttina
- arnarholm
- beggita
- gattin
- skordalsbrynja
- xk
- ellasprella
- erlasighvats
- killjoker
- hiramiaogkrummi
- lostintime
- gunnurr
- veravakandi
- helgakaren
- himmalingur
- gorgeir
- hross
- sisvet
- sigginnminn
- stellan
- brv
- saemi7
- postdoc
- valli57
Jan. 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | |||
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 |
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (28.1.): 0
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 6
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Til hamingju Ylfa!
Kveðja frá Stórusys
Yrsa Hörn Helgadóttir (IP-tala skráð) 17.11.2008 kl. 08:29
Þú mátt mata mig. Ef þú eldar matinn! :D
Þ
Þórdís Einarsdóttir, 17.11.2008 kl. 09:57
Já góður neðanþvottur er aldrei of oft gefinn :) Viltu að ég komi með sýnin eða ætlaðu að sækja þau? thí hí, Auður
Auður (IP-tala skráð) 17.11.2008 kl. 09:59
Til hamingju með þetta kona. Og á hverjum æfðir þú þig svona vel og oft ? þannig að þú fékkst svona háa einkunn ?
Sýnist ég sjá Halla hálfboginn hér á götu um daginn. Fær hann engan frið fyrir þér þessa dagana ?
ísfijarðarkona (IP-tala skráð) 17.11.2008 kl. 10:37
Ragnheiður Ása Ingvarsdóttir, 17.11.2008 kl. 10:41
Til hamingju með sannaða snilld þína í ýmsu því sem viðkemur hægðum og þvagi. Ég er ekkert að efast um færni þína þó ég leyfi mér að vona að ég þurfi ekki á þvílíkri þjónustu að halda í bráð.
Laufey B Waage, 17.11.2008 kl. 12:33
Frábært til hamingju, þetta er sko ekki ofmetnir hæfileikar :O)
Við þurfum öll á þessari þjónustu að halda á e-h tímapunkti, og það er ekki ofmetið að eiga gott fólk sem kann að sinna þessari þjónustu upp á heila 9...stolt af þér, þú gerir allt vel það sem þú tekur þér fyrir hendur, hvort sem er að líða út af eða brillera í þvag og saura prófum ásamt undirþvotti ( ein spurning, skipti þá máli hvort var um kvk eða kk að ræða ? ) var þetta próf ekki örugglega verklegt ??
;O) Þú ert yndisleg....og færð 10 í lífsins prófi.
Harpa Hall (IP-tala skráð) 17.11.2008 kl. 13:20
Til hamingju Ylfa, alveg frábær einkun. ;)
Aprílrós, 17.11.2008 kl. 16:33
En hvað það verður gaman að fá ykkur í heimsókn. Mig hefur alltaf dreymt um að fá stólpípu.
Gunni Palli kokkur
Gunnar Páll Gunnarsson, 20.11.2008 kl. 17:43
Til hamingju með árangurinn Ylfa mín, maður þarf þá ekki lengur að fara til Póllands ...
Vilborg Valgarðsdóttir, 21.11.2008 kl. 09:54
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.