3.3.2009 | 23:51
Íslendingar lokaðir inni!
Af hverju heldur fólk að við Bolvíkingar lítum svo á að við séum lokuð inni þegar Óshlíðin lokast, eins og í dag??
Þvert á móti, við kennum í brjósti um Íslendingana sem eru lokaðir frá OKKUR!
Hér er bókstaflega allt á KAFI í snjó. Afmælið var haldið hátíðlegt með kleinubakstri og við vorum öll hérna heima, sáum ekki út um glugga, og héldum afmælið fyrir Hrafna-Baldur! Svo í kvöld hefur verið House Maraþon! dr. DóraSplóra, sem geymir allt sitt fólk í Dýrafirðinum í óveðrinu, kom og fékk mjólk og kleinur og upphófst keppni um það hver væri fyrstur með réttu diagnósuna. Sú átti að fá í verðlaun, heilnudd hjá Haraldi. En hvorug okkar giskaði rétt! Sem segir ekkert um hæfileika okkar á greiningarsviði, heldur bara hvað allir tala óskýrt í þáttunum!!
En nú kallar bóndinn minn, hann vill meiri House! Eða meira af einhverju ;)
(Alla, takk fyrir boðið á upphandleggjum, ég mun nýta mér það næst þegar ég kem að kíkja á kindurnar og þig :) )
Athugasemdir
Þetta er rétta viðhorfið! Hver getur ákveðið fyrir aðra hvar nafli alheimsins er? Við hér í snjóleysinu söknum unglingsins. Þó ekki Ásgeirs og Hildigunnar (alla vega ekki ég, kannski Páll).
Berglind (IP-tala skráð) 4.3.2009 kl. 23:19
Bolungavík hefur löngum verið nafli alheimsins. Miðjan ! Það er nú gott að búið er að opna til Bolungavíkur. Langar á spurningakeppnina ykkar á föstudagskvöld. Sendifrú Guðs verður spyrill ! Spennandi ! Er að læra boðorðin núna utanað.. þú skalt ekki stela asna nágranna þíns og svo framvegis.
ísfirðinga (IP-tala skráð) 5.3.2009 kl. 00:08
Ha! asna? ertu viss? var það ekki hrútur? Það eru öngvir asnar í nafla alheimsins! eða hvað?
Bestu kveðjur
alla (IP-tala skráð) 5.3.2009 kl. 23:03
Af hverju DóraSplóra??!!!
Jón Hilmar (IP-tala skráð) 10.3.2009 kl. 00:46
Það er frá Baldri syni mínum komið! Dora the explorer. (ísl; Klossi og Dóra)
Þegar Baldur Hrafn heyrði mig tala um Dóru þá sagði hann auðvitað "Dóra Splóra" og það festist við hana á þessu heimili! :)
Ylfa Mist Helgadóttir, 10.3.2009 kl. 16:52
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.