10.4.2008 | 03:03
After the storm :)
Ég fékk yndislegar fréttir í fyrradag. Svona fréttir sem gera manni ljóst að allt fer alltaf eins og það á að fara. Allt ratar á endanum þangað sem það á heima. Ég hef verið á næturvöktum og er núna að taka eina auka. Það er hljótt í Bolungarvíkinni eftir óveðrið sem skall á í morgun. Ég trúði varla mínum eigin augum þegar ég vaknaði í gærdag eftir annars prýðilegan svefn og allt var á kafi í snjó! Ég sem hljóp heim í gærmorgun á sumarskóm! Tjah, svona er Ísland í dag.
Annars er ég með sjálfa mig í meðferð núna. Svona: ekkiverameðvirk-meðferð. Þannig er að ég umgengst afskaplega indæla manneskju mjög reglulega. Og yfirleitt er það bara hið besta mál. En svo á hún það til að vera alveg frámunalega fúl. Hennar blóraböggull er sá að vera mislynd. Og þegar manneskjan er fúl þá tiplar allt umhverfið á tánum í kringum hana. En þar sem minn blóraböggull er að vera skaphundur þá finnst mér það erfitt og hvæsi á manneskjuna á móti. Sem endar með ósköpum. Og ég fæ alveg heiftarlegan móral, yfir því að hafa ekki betri stjórn á mér. Það nefnilega sitja fleiri en bara ég í súpunni þegar illa liggur á manneskjunni og ég er ekkert að bæta úr skák með að ybba mig á móti. Svo að núna hef ég einsett mér markmið gagnvart manneskjunni. Ég ætla að hætta að taka mislyndisköstin til mín og reyna að hemja mig á móti. Hugsa: ég ber ekki ábyrgð á þessari hegðun manneskjunnar. Ég ætla að leiða geðvonskuna hjá mér. Svo lengi auðvitað, sem ég verð ekki fyrir einhverju tjóni á sál eða líkama.
Ég prófaði þetta í gær og það virkaði prýðilega. Og mér leið betur. Og ég fann hvernig manneskjan slakaði sjálf á spennunni. Og núna semur okkur alveg hreint ágætlega þegar ég er ekki að ergja mig á því að hún sé í fýlu. Hugsa sem svo: það er ekki mitt mál þó hún sé í fýlu. Og viti menn; hún er hætt að vera í fýlu :)
Það er böl að vera skaphundur. Að verða svo æfur af bræði með reglulegu millibili að manni hreinlega blindast sýn og öll skynsemi rýkur á haf út. Það er nú síst skárra en að vera mislyndur fýlupúki. Vegna þess að þó að reiðin renni manni á örskotsstundu verða orðin og gjörðirnar sem grýtt var í umhverfið og þá sem fyrir verða, ekki sópuð burt með einu blíðu brosi. Þá þarf maður að ganga berfættur í rjúkandi rústum bráðræðis síns í langan tíma. Reyna að bæta fyrir, plástra sár og draga út blóðug glerbrot særandi orða. En auðvitað skilja glerbrotin eftir sig ör. Og næst þegar fellibylurinn geisar, kennir fórnarlömbin til í gömlu örunum sínum ásamt þeim nýju sem manni tekst að valda.
Svakalega grafísk lýsing eitthvað!!!??
Með árunum hefur nú sjaldnar og sjaldnar fokið verulega upp hjá mér en ég sé alveg þessa sömu tendensa í yngsta syni mínum þó ég reyni að sverja þá af mér! :) Hann er skaphundur eins og ég, bara aðeins þyngri í skapi að auki. Og það er svo merkilegt hvað ég hef einstaklega lítin skilning á þessum eiginleika hans, þrátt fyrir að vera alveg eins! Þannig að við tvö erum dálítið eins og tvær púðurtunnur! En sem betur fer búa með okkur karlmenn, þekktir fyrir sína stóísku ró og takmarkalausu þolinmæði! Svo að yfirleitt ganga skærur okkar yfir án teljandi stórslysa.
Ég ætla í tólfsporavinnuna í Holti í Önundarfirði næsta vetur. Ég hef sl. þrjú ár verið að mana mig upp í að fara og nú finn ég að ég er tilbúin. Kannski text mér í þeirri andlegu vinnu að kveða niður einhverja djöfla, og þá er til alls unnið.
Jæja, hugleiðingum næturinnar er lokið. Ég ætla að fara að leggja á morgunverðarborðið.....
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
8.4.2008 | 02:53
GUÐRÍÐUR PÉTURSDÓTTIR!
Það þýðir sko ekki að laumast eitthvað á gestabókinni og hvísla þar einhverju hæ-i og hverfa svo bara aftur inn í myrkrið!
Hvar ertu kona góð? Hvar áttu heima, hvað ertu að gera? Afhverju hef ég ekki séð þig í 100 ár? Einhverntíma fékk ég hjá þér email sem ekki virkaði.... var það viljandi?
Fyrir þá sem ekki vita hver Guðríður Þorstína Pétursdóttir er, þá er hú gömul vinkona úr Húsmæðraskólanum sem síðar bjó á "Gamla elliheimilinu" á Ísafirði með mér. Þá vorum við á sokkabandsárunum. Hún var að mig minnir mesti skaphundur og fljót að fara í fýlu. En muni ég rétt bráði það oftast af henni fljótlega. Ekki satt Gurrý mín??? :)
Gaman að fá kveðju frá þér núna. Mig dreymdi einmitt svo einkennilega í kvöld þegar ég lagði mig fyrir næturvaktina. Mennina tvo sem við þekktum þarna í den tid, þessa sem ég faldi mig fyrir þarna um kvöldið þegar þú fórst inn og hundurinn var næstum búnað þefa mig uppi!!! Hahahahaha!! Það sem þá var brallað. Mig minnir að hrísgrjónagrautur hafi komið við sögu þess húss um svipað leiti?
Mikið væri nú gaman að heyra frá þér. Sendu mér línu á ylfamist(at)simnet.is Gurrý!
Þið hin... ef þið nenntuð að lesa þessi prívatskilaboð, takk fyrir það :)
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
6.4.2008 | 20:43
Sunnudagur
Letidagur.
Hef að mestu eytt honum með vinkonu minni sem lá í timburmönnum, étið köku og leitað með henni að landbúnaðartengdu starfi í Skandinavíu á veraldarvefnum. Við fundum ekkert en bauðst vinna við nautgripasmölun í Argentínu og sem sjálfboðaliði í Mósambik og var það starf fólgið í því að kenna bændum að reka burtu fílahjarðir með piparávöxtum! Hún var ekki alveg búnað ákveða sig þegar ég fór að sinna vinnu.
Halli og litlu drengirnir tveir eru að keyra heim frá Akranesi í kvöld. Skruppu yfir helgina suður og eru búnir að vera í bíói, ævintýralandi Smáralindar og sundi ásamt einni fermingu. Er að spá í að éta síðbúinn kvöldmat einhverntíma þegar ég nenni og slafra þá í mig leifum saltfiskréttarins sem ég eldaði í gærkvöld handa Söru frænku sem kom í heimsókn. En fyrst og fremst ætla ég snemma að sofa.
Kannski samt ég byrji á að ryksuga. Það er greni úti um öll gólf. Gæti trúað það væri síðan á jólum.......
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
1.4.2008 | 15:46
Debet og kredit.
Sit og legg lokahönd á skattaskýrsluna. Ég anda alltaf léttar þegar hún er í höfn. Sá að þorri þjóðar er búinn að skila og ákvað að vera nú tímanlega í þessu. Furðulegt þó að ég bað um frest áður en ég byrjaði á skýrslunni!! Og það um leið og skýrslan varð aðgengileg á netinu. Þetta kallast auðvitað frestunarárátta og hjá mér er hún á versta stigi! En ég er að verða búin að sjá að skuldir eru auðvitað langt umfram eignir og áframhaldandi ástand gengur ekki. Því auglýsi ég eftir vinnu fyrir tvo á olíuborpalli í norðursjó eða landvarðarstöðu á Jan Mayen. Eina skilyrðið er að launin séu svimandi há og jú, annað, að börn séu engin fyrirstaða!!
Annars finnst mér ekkert svo leiðinlegt að gera skýrsluna svo lengi sem ég er með öll gögn fyrir framan mig. Og mér finnst æðislegt að ýta á send! Ég er með tebollann minn og er í fríi, börnin hist og her um húsið, og á eftir þegar Baldur fer í ofurhetjuafmæli til Jóa vinar síns, ætla ég í sund og bæta upp fyrir hreyfingarleysi undanfarinna daga. Ég hef verið hálf t****leg undanfarið með hósta og slappleika. Halli vill kenna reykingum undanfarinna tuttugu ára um, en ég bendi honum auðvitað snúðugt á það að sjálfur sé hann alltaf kvefaður og ekki hafi hann við reykingar að sakast. Merkilegt hversu lífsseig Þörfin er, fyrir að réttlæta eigin breyskleika!
Annars átti ég afmæli í gær. Ég held að aldrei fyrr hafi ég verið jafn ómeðvituð um að eiga afmæli! Ég áttaði mig auðvitað ekkert fyrr en langt var liðið á dag og þá var orðið allt of seint að gera nokkuð í því! En það er líka ágætt. Afmælisdagar eru bara dagar...... eins og aðrir dagar. En best er að snúa sér aftur að fylgiskjölum skattsins. Sýni ykkur eina mynd af okkur systrum frá því að við vorum á Akureyri í ferbrúar. Ég held, svei mér þá, að þetta sé eina myndin af okkur saman sem til er! Þarna bauð mamma okkur út að borða á La vita e bella.. eða La bella e vita.... man ekki hvort, og við áttum æðislega stund saman allar þrjár! Mamma tók myndina og þetta var sú eina sem heppnaðist af mööööörgum tilraunum.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (16)
29.3.2008 | 17:04
Laugardagur
Þegar kemur að kommentakerfinu mínu hefur fólk gjarnan kvartað undan afskiptaleysi af minni hálfu. Þ.e. að ég svari aldrei kommentum. Ég geri það sjaldan, það er rétt. Mér til málsbóta ber að geta að ég mynda alltaf svar í huganum en hripa það sjaldnast niður....... En öll komment les ég með áfergju og af gleði svo að í Guðs bænum ekki hætta að kvitta kæru vinir!
Annars er bara prúður laugardagur hérna í fallegu Bolungarvík sem tekur við endalaust meiri snjó! Snjór er fallegur og felur blautt og rotið grasið. Vissulega. En skyndilega er kominn vorfirðingur í mig. Og ég þrái íslenska sumarið með sínu undursamlega hrossagaukshneggi, heiðlóukvaki, björtum nóttum sem nauðsynlegt er að vaka af og til, grænu, safamiklu grasi með fáránlega gulum sóleyjum og fíflum. Djúpbláum sjó með fyssandi öldum sem bera hressilega og salta hafgolu til okkar á landi. Ég sakna fjörsins á Óshlíð og í Stigahlíð þar sem sjófuglar liggja á hreiðrum, milli þess sem þeir fljúga í óðaönn á haf út að ná í síli fyrir unga sína, gönguferða fram Tungudal á algjörlega kyrrum sumarkvöldum og nestisferða inn í Djúp. Tjaldferða í Reykjanes, að sitja á pallinum mínum með tebolla og hóa í vegfarendur sem koma og spjalla, þiggja tebolla og njóta með mér sólarinnar.
Ég sakna Svarfaðardals. Félaganna úr Bandalagi Íslenskra leikfélaga sem hafa safnast í dalinn í rúman áratug og lagt kapp við að sinna sínu brennandi áhugamáli. Í þessum fallega dal þar sem ég þekki hverja þúfu og hvern stein síðan ég var barn, hafa dagar og nætur liðið í endalausri sælu, gítarspili í brekku, niðurbældum hlátrum um nætur þegar allt á að vera hljótt og ótrúlegum afrekum á daginn þegar allir leggja sál sína í kjöltu Talíu og uppskera að lokum kraftaverk. Jaðrakaninn syngur undir sitt vaddúddí vaddúddí og stelkurinn rænir menn morgunsvefninum. Og þegar sólin byrjar að verma grasið, nú.. eða bræða snjóinn, sem hefur líka skeð, má sjá svefndrukknar og úfnar manneskjur hópast saman í stóran hring úti á flöt, flestar berfættar, og allar teygja þær heldur í átt til sólar, anda djúpt og bjóða nýjan dag velkominn.
Ég hef ekki farið lengi í Svarfaðardal. Ég fer ekki í sumar en kannski það næsta.
Það eru gestir væntanlegir í kvöldmat. Hjöra mín yndislegust, þrágúst og maðurinn sem ég man aldrei hvað heitir. Hann er þó síst verri fyrir vikið. Ég ætla að gefa þeim kjúklinga og svo um miðnættið fer ég á Skýlið að hagræða svæflum við lúin bök, gefa vatn að drekka, opna glugga, loka glugga hvísla uppörvandi orð í þreytt eyru í myrkrinu. Það er oftast ró og friður á vaktinni. Fólkið sefur á meðan hvítklæddar verur ganga hljóðlega um ganga á gúmmísóluðum klossum og sinna næturverkunum. Setjast niður á milli og prjóna, líta í bók eða rýna á einhverja B-myndina í sjónvarpinu. En svo glymur bjallan og þá fara hvítklæddu verurnar af stað og hagræða svæflum við lúin bök, gefa vatn að drekka, opna glugga, loka glugga hvísla uppörvandi orð í þreytt eyru í myrkrinu.................
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (21)
27.3.2008 | 17:03
Ég hef ekkert að segja.
svo að ég set bara inn myndir í staðinn. Ég á eftir að tæma myndavélina af fermingarmyndunum svo að þær koma síðar og í staðinn koma bara gmalar af www.flickr.com/photos/ylfa
Gjöriði svo vel, bland frá því í gamladaga :)
Byrja á einni dæmigerðri vestfirskri sólseturs-sumarmynd.
Næstur er Kenn Carlsen, danskur gestur sem ég tók með mér í skoðunarferð að nóttu til.
Sigurborg Valrúnardóttir er næsta myndefni. Hún er orðin dani og getur því vonandi leikið sér í sólinni í allt sumar. Þessi var tekin við gamla húsið okkar í Traðarlandi.
Allir sem hafa ekið Djúpið hafa séð þennan merkilega eyðibæ. Þetta er Angerðareyri, þar var höfn hér áður fyrr og þar landaði djúpbáturinn Fagranes til margra ára. Við komum alltaf við þarna á sumrin, tökum myndir, borðum nesti og bara njótum....
Gamla búrið inni í húsinu Arngerðareyri. Það hvílir angurværð yfir þessum tómu búrskápum og rúðulausa glugga.
Magali, sem kom með Kenn Carlsen manni sínum sleppti sólsetursferðinni en hamaðist því meira á trampólíninu í staðinn.
Að lokum; fiskimaðurinn í Ósvör.
Eins og sjá má eru allar myndirnar sumarmyndir. Það stafar líklega af því að ....... ég sé farin að þrá sumar?? Gæti það verið? Í sumar set ég inn vetrarmyndir.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Fermingin gekk vel. Drengurinn minn litli er allt í einu orðinn stór strákur með ryðgaða rödd og hýjung á efrivör. Sem faðir hans reyndar rakaði að morgni fermingardags, ásamt því að strauja af okkur fötin. Og þegar ég segi faðir hans, á ég við föður hans. Ekki eiginmann minn... :) Það er gaman að vera partur af léttklikkaðri fjölskyldu sem þykir ekkert athugavert við það þó móðir fermingabarnsins sé hvorki búin að strauja fermingarfötin né þá heldur ákveða hverju hún sjálf ætlar að skarta klukkutíma fyrir athöfn! Og á meðan móðirin æddi um húsið í örvæntingafullri tilraun til að hafa yngstu meðlimi fjölskyldunnar til, klædd sokkabuxum og brjóstahaldara einum fata straujaði Páll Björgúlfsfaðir skyrtur og skokka og söng"Hlusta á Zeppelin.. og ég ferðast aftur í tímann..." nema hvað að textinn hljómaði meira: sniffa teppalím því ég gleymdi að svara í símann.... eða eitthvað ámóta. Halli fann ekki buxurnar sínar, Berglind sem gengur undir nafninu vonda stjúpan þrátt fyrir að vera hin allra prýðilegasta stjúpmóðir tók af borðinu og lagaði til, Baldur heimtaði að fara ber að ofan í kirkjuna og Birni fannst ekki sanngjarnt að elsti bróðir fengi heilt dress en hann BARA nýja skyrtu sjálfur og gerði allþónokkuð mál úr því....
En merkilegt nokk, þessi fjölskylda var mætt FYRST í Hólskirkju að morgni skírdags! Veðrið var ógeð en það býttaði engu. Dagurinn varð bara dásamlega góður. Drengurinn gekk með öllum fjórum foreldrunum til altaris ásamt litlu systkinunum sem fengu reyndar bara blessun en ekki brauð og þótti Baldri það algjörlega óþolandi og á það ennþá til að röfla yfir því að hafa ekki fengið nammi!
Og þar sem títtnefndur Baldur Hrafn er athyglissjúkur skaphundur sem hefur það þó með sér að vera þvílíkt krútt að það vegur upp á móti geðvonskunni og stjórnseminni, hefur aldrei liðið það að vera ekki aðalnúmerið á mannamótum, varð hann sér úti um eitt stykki lungnabólgu. Hann semsagt veiktist síðla fermingardags og fór svo daginn eftir til læknis sem helst vildi senda hann á spítalann. Við foreldrarnir erum nú orðin svo sjóuð í þessum langdregnu afleiðingum RS vírussins sem hann krækti sér í sem ungabarn að við skellum bara í hann penicillini og höfum hann heima.
Þar sem ég er að ljúka næturvakt þá set ég inn myndir seinna í dag, þeas. þegar ég vakna. Ó já, ég er með veikt barn heima.....uuuu ég sef semsagt eitthvað lítið.. ef eitthvað. Langar einhvern að koma og passa á meðan ég hvíli mig???? Anyone???
Bíð SPENNT eftir viðbrögðunum frá öllum þeim sem segja: Ji já, ég myndi fegin passa fyrir þig ef e´g væri ekki einmitt stödd í Úzbekistan þessa stundina... :)
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
19.3.2008 | 10:45
Ammliammliammliammliammliammli
Halli á afmæli í dag. Hann tilkynnti fyrr í vetur að hann ætlaði sko ekki að láta einhverja fermingu skyggja á afmælisdaginn sinn. Alvara fylgdi nú reyndar ekki máli og hann hverfur alveg í skuggann!!
En hann fær samt gott að borða í kvöld. Það er líka allt sem hann vill ;o)
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
18.3.2008 | 15:14
Stóri dagurinn
er ekki á morgun heldur hinn! Þá ætlar elsti drengurinn minn að taka Jesúm Krist í hjarta sitt og fylgja honum allt til enda. Skilst mér.
En undirbúningurinn er léttur og löðurmannlegur enda stóð ekki annað til. Gestirnir eru svona að tínast að smátt og smátt og ég er búin að fara í Bónus. Þá finnst mér þetta nú vera komið. Steina frænka frá Danmörku er hérna í Bolungarvík hjá systur sinni sem á einn fermingardreng líka svo að ég fæ að sjá hana aðeins. Yrsa systir, eiginmaður og börn eru á leiðinni með mömmu í farteskinu, R. faðir minn Vilbergsson kemur á morgun með konu og barn, Björgúlfspabbi og stjúpa komu í fyrradag og svo eru föðursystkini fermingardrengsins að koma vestur á morgun. Pabbi og Tóta koma ekki, þar sem þau fara "í gjöf" á morgun á sjúkrahúsinu á Akureyri en þau eru nú samt ábyggilega að bruna yfir Steingrímsfjarðarheiðina í huganum og verða með okkur í anda. Nú, og fleiri verða gestirnir ekki að ég held. Enda er þetta bara fínt. Held að flestir ættingjarnir hafi andað léttar yfir ákvörðun drengsins að hafa enga eiginlega veislu, enda marsmánuður ekki eftirlætis ferðatími fólks. A.m.k. ekki þegar Vestfirðir eiga í hlut!
Jæja, það er best að taka til. Yrsa systir mín kemur áræðanlega með hvíta hanskann og tekur þetta út hjá litlu systur sinni ;o)
Lifið heil.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)