1.9.2007 | 19:22
Rigningarhaust
Nú er ég að verða örvæntingarfull. Ég er svo hrædd um að það stytti bara ekkert upp og ég komist ekki meira í berjamó. Svo bara frjósi allt þetta vatn sem puðrast niður úr himnunum og ég endi á að tína eintóma berjaklaka!
Gunni bróðir Halla, frú og börn eru í heimsókn hjá okkur, ásamt hundinum Freyju. Í dag voru göngur í sveitinni okkar í Dýrafirði og Halli og Björgúlfur fóru í leitir. Við hin tókum meira bara þátt í að borða góða matinn sem var borinn á borð eftir að féð var komið í hólf..... Svo brunuðum við á Súganda og fórum í sund í ausandi rigningu og í kvöld er stefnan tekin á eina leggju eða svo áður en ég mæti á vakt á Langa Manga. Valrún vinkona er á tónleikum í Danmörku, man ekki hvort það eru Police, Toto, Eagles eða Brimkló... eitthvað af þessum uppáhalds böndum hennar. Ég ætlaði að hringja í hana á Skype-inu til að prófa. Hún fékk sér svona Skype síma. Þarf að fá mér svoleiðis og tengja í símann minn. Þá get ég hringt út um allar trissur á spottprís. Jæja. Halli er að elda einhvern gasalegan kjúklingarétt, best að fara og segja honum hvernig eigi ekki að gera það!
Luv, Frau Ring.
Athugasemdir
Guð hvað tíminn líður fljótt. Ég hef ekki séð Birni síðan þið voruð í Reykjavík. Þá var hann ekki hár í loftinu. Og núna er hann byrjaður í skóla. Ja hér! Mér heyrist það ganga vel á Langa manga og er glöð að heyra að svangir mangar geti fengið eitthvað almennilegt að eta á Vestfjörðum.
Sigríður Karen Bárudóttir, 2.9.2007 kl. 10:30
Fann fyrir svipaðri örvæntingu í gær. Svo stytti upp í dag og ég fór og tíndi rúm 2 kíló af bláberjum. Skellti þeim beint í rjómaís (uppskriftin algjörlega eftir eyranu - stillti mig um að hringja í þig). Hlakka til að smakka hann. Vona að þú náir að tína meira af þessu unaðslega góðgæti áður en frystir.
Laufey B Waage, 2.9.2007 kl. 23:17
óskøp er hljódid dapurlegt !
thad er police tónleikar sem hún er á kæra frænka
knús til thín og thinna
Ljós
steina
Steinunn Helga Sigurðardóttir, 3.9.2007 kl. 10:24
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.