Hinn eini sanni Tjarnarkvartett

varð til í Svarfaðardal, skipaður Diddu og Stjána, Rósu og Hjöra. Aðra Tjarnarkvartetta nenni ég ekki að hlusta á. Og þá er það klárt.

Við ætlum að fara á ættarmót inni í Reykjanesi á eftir. Það spáir reyndar rigningu en það er allt í lagi. Ég tíni þá bara fjallagrös á meðan gæjarnir hanga í lauginni. Það er stemmning í Víkinni í dag. Bylgjan að senda út dagskrána héðan, grískt matar og menningarkvöld í kvöld og ég veit ekki hvað og hvað.

Góða helgi.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Laufey B Waage

Góða skemmtun í Reykjanesi.

Laufey B Waage, 15.8.2008 kl. 16:43

2 Smámynd: Þórdís Einarsdóttir

Góða skemmtum í Reykjanesinu. Það má nú alltaf liggja lengi í stærsta heitapotti landsins!

Þ 

Þórdís Einarsdóttir, 15.8.2008 kl. 19:50

3 identicon

Eg er alveg sammála þer með Tjarnarkvartettinn, nenni ekki að hlusta á aðra en þau.

Unnur María Hjálmarsdóttir (IP-tala skráð) 15.8.2008 kl. 23:34

4 identicon

Amm. Hef einmitt verið að velta fyrir mér hvað hinum upprunalegu Tyrningum þætti um þessa asnalegu nafngift á 100 daga borgarstjórninni.

Sigga Lára (IP-tala skráð) 16.8.2008 kl. 16:38

5 identicon

Sammála þér með Tjarnarkvartettinn..hélt reyndar að það væri sá Tjarnarkvartett sem talað væri um þegar ég heyrði þetta útundan mér í útvarpinu en ég er líka ljóska ársins!;) (samanber nýjustu færsluna mína)

Vala Dögg (IP-tala skráð) 17.8.2008 kl. 22:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband