Elskan, sko, bíllinn er klár, skoðaður en engin lykill til.....?

Það væri synd að segja að við hjónin værum annað en frekar "seinheppin." Eins og vitað er, farnast okkur sjaldan vel í td. bílamálum. Ef Diselolía er ódýrari þá rekum við bensínbíl. Ef bensínið er ódýrara þá erum við vitanlega á Díselbíl. Þannig bara er það. Og í bankahruninu miðju, hrundi bíllinn okkar. Ég fór bara og keypti mér ódýran (500þús) slyddujeppa, gamlan og góðan og ákvað að bíða eftir að ég "dytti" niðrá góða vél í hinn bílinn sem er af tegundinni Hyondai Starex.

Sem ég og gerði. Fína vél á 100.000 kall. En að setja hana í bílinn kostaði hálfa milljón. En áður en ég fann hana, kviknaði í vélinni á slyddujeppanum. Þannig að í kreppunni góðu, sátum við uppi með tvo vélarlausa bíla. Dásamlegt. Starexinn var leystur út af verkstæðinu í fyrradag. Hann mun hér eftir ganga undir nafninu "Gullvagninn." Dýrasti bíll á Íslandi, miðað við upphafsverð, gæti ég trúað.

Handbremsan á bílnum er reyndar ónýt og nú voru góð ráð dýr. Ég átti að mæta með hann í skoðun næsta dag, semsagt í gær, klukkan níu að morgni. Var bara með sólarhrings akstursleyfi. Gæti ég smyglað honum í gegnum skoðun með ónýta handbremsu? Það tókst! (og nú verður örugglega hringt í mig frá skoðuninni og mér gert að koma með Gullvagininn hið snarasta fyrst mér ekki ferst betur en þetta að halda kjafti!)

Kona nokkur, búsett á Urðaveginum og gengur undir nafninu "persónulega hjúkkan," hér á heimilinu, hafði boðið mér í morgunkaffi. Þangað brunaði ég á nýskoðuðum Gullvagninum í gegnum snjóskafla og skafrenning og parkeraði snyrtilega fyrir framan hjá henni. Síðan, eftir að hafa klofað metersháa skaflana upp að húsinu hennar fór ég inn og drakk kaffi og reyndi að sjá til þess að hún yrði of sein í vinnuna. -Hvar sem það nú er. Svo var að hafa sig af stað og viti menn. Bíllyklarnir voru horfnir!

Hófst nú upp hin æðisgengna leit sem aldrei verður gleymt. Öllu var snúið á hvolf, vasar tæmdir, sófinn skannaður í drasl, hillur stroknar, veskjum snúið við, -og það ekki bara mínu veski heldur líka persónlegu hjúkkunnar. Allt kom fyrir ekki. Enginn fannst lykillinn.  Djöfull! Hvað nú? Þetta er eini bíllykillinn! Með fjarstýringu og alles svo að það er ekkert djók að fá nýjan..

Þá var ekki um annað að ræða en að henda sér út og leita í snjónum. Snjónum var bókstaflega snúið við í leitinni og á endanum sættum við okkur við að annað hvort þyrfti málmleitartæki eða að bíða vors. Moksturstæki hafði straujað framhjá einmitt á meðan ég sat í kaffi og líklega ýtt lyklinum eitthver niðrí bæ...... hvað átti ég að segja Halla? "Elskan, bíllinn fékk skoðun en það er ekki til neinn lykill að honum??"

Drullufúl lét ég persónulegu hjúkkuna, -sem bæ ðe vei gat ekki hætt að hlæja, -keyra mig til ömmu svo að ég gæti hringt nokkur símtöl því að auðvitað var batteríið að verða búið á mínum síma. Þegar þangað var komið og búið að öskra á eiginmanninn sem stakk uppá því að ég færi aftur út að leita í hríðarbylnum með SEGUL að vopni, hringdi ég í B&L og byrjaði umsvifalaust að garga á þann fyrsta sem fyrir mér varð, og gerði þau mistök að svara símanum. Til að róa mig aðeins niður fór ég að gramsa í töskunni minni eftir tyggjópoka sem ég þóttist eiga þar og henti honum á borðið. Það hljómaði dálítið einkennilega? Ég tók pokann upp. Hann var tryggilega lokaður með plastrennilás. það kom mér á óvart því að ég get aldrei lokað þessum tyggjópokum aftur eftir að ég er búnað opna þá.

Ég opnaði pokann og áttaði mig á því að lykillinn væri fundinn. Snúðugt sagði ég manninum hjá B&L að ég mætti ekkert vera að þessu, lagði á og veiddi lykilinn uppúr..... Það var ekkert auðvelt. Afi stakk uppá því að lykillinn hefði bara runnið oní tyggjópokann þegar ég setti hann í töskuna en það stóðst engan veginn! Það þurfti að vanda sig verulega til að geta troðið lyklunum ofaní ásamt kippunni sem þeir héngu á. Þetta hef ég gert án þess að hafa hugmynd um, lokað vandlega niðrí pokanum og stungið í veskið.

Ég veit ekki hvort ég er glöð yfir því að lyklarnir séu í raun ekki týndir, eða hreinlega mortified, vegna þeirrar staðreyndar að ég hef troðið lyklunum ofan í lítinn tyggjópoka, lokað honum og stungið í töskuna mína, án þess að hafa hugmynd um hvað ég væri að gera. Spurning um að fara að láta rannsaka á sér höfuðið??

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

hahahahahaha þetta toppar mig algjörlega, svemerþá þú ert, ja hvað getur maður sagt? Seinheppin og hrikalega fyndin kona, alveg að verða miðal......

kossar og knúsar, stórasys.

Yrsa Horn Helgadottir (IP-tala skráð) 3.12.2009 kl. 17:58

2 identicon

vá það munar ekki um það................seinheppinn er vægt til orða tekið. Ættir að athuga betur þessi "aðsvif" sem þú ert að fá. Getur annars litið á jákvæðu hliðina..fékkst  jú að leika þér í snjónum

valrun (IP-tala skráð) 3.12.2009 kl. 19:05

3 Smámynd: Björn Emilsson

Elsku Ylfa Mist

Skemmtileg saga. Drifðu þig að fá þer aukalykil.

Björn Emilsson, 3.12.2009 kl. 22:40

4 identicon

Þú ert engum lík Ylfa mín....og farðu nú að skrifa bók!

Annska (IP-tala skráð) 4.12.2009 kl. 00:29

5 identicon

það eru alltaf litlir álfar sem að stríða mannfólkinu og setja hlutina á skrýtna staði svo maður finni þá ekki. Þú ert alveg með hausinn í lagi en ert sennilega lögð í einelti af álfum.

Hildur (IP-tala skráð) 4.12.2009 kl. 09:26

6 identicon

Hahahaha, þetta er með fyndnustu sögum sem ég hef lesið lengi, gat ekki hætt að hlægja! Elsku Ylfa gefðu út bók með reynslusögum af þér fyrir næstu jól, það yrði sko óskabókin mín;o)

Guðrún Halla (IP-tala skráð) 4.12.2009 kl. 10:53

7 Smámynd: Faktor

Þú ert óborganleg

Ég vildi að ég gæti fundið minn lykil í tyggjópakkanum mínum, lenti í svipuðu, þ.e. gekk smá spöl á milli húsa, það snjóaði (meira) á meðan, ég staldraði við.  Þegar heim var komið var enginn lykill sjáanlegur   Einn lykill eftir, annar var eyðilagður af "prófessor" fyrir nokkrum mánuðum   Það er eins gott að PASSA vel þetta eina eintak, kannske best að setja hann alltaf í tyggjópakkann

Faktor, 4.12.2009 kl. 14:26

8 Smámynd: Matthildur Ágústa Helgadóttir Jónudóttir

er ekki augljóst að persónulega hjúkkan sem hló á þarna hlut að máli...

Matthildur Ágústa Helgadóttir Jónudóttir, 4.12.2009 kl. 15:11

9 Smámynd: Ylfa Mist Helgadóttir

augljóslega! hún hefur horft á mig gera þetta allt saman. Troða lyklum í pokann og allt. Án þess að taka á því vandamáli né tilkynna mér um það.

Ylfa Mist Helgadóttir, 4.12.2009 kl. 15:16

10 identicon

Ylfa þú getur alltaf dimmu í dagsljós breytt.

Guja (IP-tala skráð) 4.12.2009 kl. 17:46

11 Smámynd: Aprílrós

hahahaha þú ert hrein snild

Aprílrós, 4.12.2009 kl. 22:18

12 identicon

Ylfa, þú ert algjör snillingur. Ég hefði gefið mikið fyrir að sjá þig og heyra í símanum hjá ömmu þinni. En þessi "lyklafelustaður" kemur mér ekkert á óvart. Einu sinni þegar ég var að kenna í grunnskólanum átti ég sérstaka  skólalyklakippu, með 2 eða 3 lyklum. Hún hvarf einn daginn og eftir mikla leit og margar nemendayfirheyrslur játaði ég mig sigraða og fékk lánaða aðra kippu. Einhverjum mánuðum seinna var ég að taka til í veskinu mínu og henda alls kyns rusli sem hefur þá áráttu að safnast þar fyrir. Meðal þess sem fór í ruslið var dömubindi í grænum umbúðum sem ég skildi bara ómögulega hvað gat verið þungt. Viti menn, þar hafði blessuð lyklakippan falið sig.

Sólrún Geirsdóttir (IP-tala skráð) 5.12.2009 kl. 22:50

13 identicon

Ha,ha!   Við þurfum greinilega að finna einhverja lausn á þessu með lyklageymsluna. Mæli með úlniðsbandi þar sem lykillinn hangir í, "ALLTAF" líka þegar þú ert að keyra. Og Halli fær annan eins. Og geyma varalykil á góðum stað. Og svo væri kannski ráð að fá sér minna veski með færri hólfum. Og þó, nei annars, tek þetta allt til baka. Því að hverjum ætti ég þá að hlægja?

Alla (IP-tala skráð) 7.12.2009 kl. 12:45

14 identicon

HAHAHA, þessi lesnig fær mig til að finnast ég vera fullkomlega eðlileg.

Eyja (IP-tala skráð) 9.12.2009 kl. 17:41

15 identicon

Ég grét úr hlátri. Bókstaflega.

Ég hef aldrei hlegið svona hroðalega mikið að sögu frá þér sem snýst ekki á einhvern hátt um meltingarstarfsemi Haraldar.

Sigga Lára (IP-tala skráð) 11.12.2009 kl. 19:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband