28.11.2007 | 17:44
somboddí shjút mí !!!
Jæja.... ég er í það minnsta hvergi flokksbundin....
Ekki meira blátt og bleikt | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Efni
Eldri færslur
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
2007
Bloggvinir
- bumba
- steina
- matthildurh
- juljul
- snorris
- krissa1
- rasan
- fjallakor
- katagunn
- sverrir
- daglegurdenni
- vilborgv
- vefritid
- vertinn
- bryndisfridgeirs
- harpao
- hallasigny
- gudnim
- rocksock
- skodun
- skjolid
- marsibilkr
- grazyna
- tolliagustar
- helengardars
- eggmann
- biggibix
- hugdettan
- glomagnada
- ringarinn
- laufeywaage
- gretaskulad
- gunnipallikokkur
- gudrunstella
- bifrastarblondinan
- tamina
- trukkalessan
- jonberg
- sigynhuld
- aslaugas
- heimskyr
- husmodirin
- malacai
- aloevera
- kruttina
- arnarholm
- beggita
- gattin
- skordalsbrynja
- xk
- ellasprella
- erlasighvats
- killjoker
- hiramiaogkrummi
- lostintime
- gunnurr
- veravakandi
- helgakaren
- himmalingur
- gorgeir
- hross
- sisvet
- sigginnminn
- stellan
- brv
- saemi7
- postdoc
- valli57
Nóv. 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | |||||
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Ylfa!
"Margur er tálminn á leið fljótsins;
þó nær vatnið allt sem kvíslast
um eyrar og björg
að renna saman að nýju". Kveðja YHH
Yrsa Hörn (IP-tala skráð) 28.11.2007 kl. 20:02
pólitík ?
AlheimsLjós til þín kæra frænka
steina
Steinunn Helga Sigurðardóttir, 28.11.2007 kl. 20:45
Ég spyr, hafa alþingismenn engan áhuga á alvöru málum? Hverjum er ekki saman um blátt og bleikt á fæðingardeildinni. Þetta er meira að segja frekar krúttlegt bara. Má ekki frekar vekja athygli á undirmönnun deildanna.
Þ
Þórdís Einarsdóttir, 28.11.2007 kl. 21:52
Sammála Þórdísi. Mikið vildi ég frekar að góðir alþingismenn notuðu orku sína og tíma (að ég tali nú ekki um fjármagn) til að laga það sem virkilega skiptir máli í heilbrigðiskerfinu - og fleiri kerfum.
Laufey B Waage, 29.11.2007 kl. 10:46
Já haha.... Þetta er auðvitað alvöru mál. Það hlýtur hafa stórkostleg áhrif á barnið alla ævina hvort það klæðist bleiku eða bláu eða gulu eða hvítu á spítalanum.
Djöfulsins kjaftæði er þetta..... hafa alþingismenn ekkert gera eða.....
Gló Magnaða, 29.11.2007 kl. 10:55
mér hefur liðið illa í mörg ár...fyrstu mínútur lífs míns var ég NAKINN!!!!
Guðni Már Henningsson, 29.11.2007 kl. 13:15
Oft veltir lítil þúfa þungu hlassi. Ég man ekki eftir því í fljótu bragði að neitt mál hafi fengið þvílíka athygli síðan á tímum fjölmiðlafrumvarps.
Matthildur Ágústa Helgadóttir Jónudóttir, 29.11.2007 kl. 13:24
Ég hef líka alltaf spurt HVAÐ ER ÞESSI KONA að gera inn á þingi????
Spákonan á Kambinum (IP-tala skráð) 29.11.2007 kl. 14:11
Ég klæddi börnin eftir þessari reglu, stelpan bleik og strákurinn blár. Þetta gerði ég fyrir nærri 30 árum og nú kaupi ég föt á barnabörnin eftir sömu reglu. Ég set rauða dúkinn á borðstofuborðið á jólum og þann gula á páskum. Ég elska svona liti sem tákna eitthvað.
Bryndís G Friðgeirsdóttir, 29.11.2007 kl. 21:32
Hvað með að setja þau í hvítar mussur
strákar með typpi á sínum
og stelpur með sjúdirarírei
Hákon Unnar Seljan Jóhannsson, 29.11.2007 kl. 22:21
Sjúdirarírei!!! Ég hef lengi verið í vandræðum með hvað maður á eiginlega að kalla kynfæri kvenna. Svona í almennu tali, ekki sundurgreint og líffærafræðilega. Femínistar hafa síðustu árin reynt að vekja píku-nafnið til vegs og virðingar og reka af því slyðruorðið. Mér hefur samt ekki tekist, þrátt fyrir langan tilraunatíma, að sætta mig í hjarta mínu við að nota það orð þegar um börn er að ræða. Hef einmitt beðið eftir nýyrði. Sjúdirarírei er kannski lausnin?! Ekki þjált á tungu, ekki mjög smart heldur, en alla vega nýtt og hefur aldrei verið sagt í niðurlægjandi tón um neina konu. Það er þó eitthvað.
Berglind (IP-tala skráð) 29.11.2007 kl. 23:00
Hahahaha.........
Ertu með sítt á Sjúdiraríreiinu þínu?
Gló Magnaða, 30.11.2007 kl. 08:36
Berglind: Hvað með "pjalla"?
Sé ekki að börnin séu ósátt við litina sem þau eru klædd í á fæðingardeildinni. Sjálf setti ég soninn í rústrauð föt þegar við fórum heim. Ein hjúkkan á sængurkvennadeildinni var laaaangt frá því að vera sátt við það. Mér fannst það bara æði.
Núna á hann rauð föt, appelsínugul, græn, blá, gul og allt þar á milli. Nema bleik, ég er ekki mjög hrifin af bleiku. Þá telst ég væntanlega kvenremba. Eða hvað.
Þ
Þórdís Einarsdóttir, 30.11.2007 kl. 09:00
Þegar ég átti á fæðingardeild LSH var skúffa full af smekkbuxum við skiptiborðið (sumar bleikar, aðrar bláar) og treyjum (allar hvítar). Nýfædda stúlkan var ber og vafin í bleyju þegar ég fékk hana og mér var bent á að klæða hana og setja á hana taubleyju. Að sjálfsögðu klæddum við stúlkuna í treyju og BLÁAR buxur, enda foreldrarnir bæði femínistar og pönkarar!
Því er mér spurn hvort það séu ekki foreldrarnir sjálfir sem velja litinn á barnið sitt. Í boði er bleikt og blátt; Hvað viltu velja?
Kveðja í víkina..
...þess má geta að í dag, 5 árum síðar, er þessi stúlka eitthvað al-bleikasta fyrirbæri sem finnst. Allir litir eru í boði.
Huld (IP-tala skráð) 30.11.2007 kl. 12:22
Það er stundum gott að vera litblindur þegar málið snýst um klæðnað smábarna.
Gunni Palli kokkur
Gunnar Páll Gunnarsson, 1.12.2007 kl. 08:36
Ég var að spá - hvernig væri ef fæðingardeildir væru uppfullar af ungbarnafötum í öllum regnbogans litum sem foreldrar gætu svo valið eftir smag og behag fyrir börnin sín. Það fyndist mér bæði skemmtilegt og persónulegt. Er ekki dálítið kynlegt að það skuli bara vera hægt að fá bleikt og blátt? Ég sé fyrir mér að sumir foreldrar mundu t.d velja blátt fyrir litlu stúlkuna sína og aðrir t.d. bleikt fyrir litla drenginn sinn...
Hulda Hákonardóttir (IP-tala skráð) 2.12.2007 kl. 01:15
Já lausnin er auðvitað sú að bjóða tískuvöruframleiðendum að vera með sinn bás hvern á fæðingardeildinni þar sem þeir byðu fram nýburafatnað í öllum regnbogans litum og í öllum helstu tískumerkjum. Þetta myndi ekki kosta spítalann neitt og börnin yrðu strax tískumeðvituð.
Lárus Vilhjálmsson, 2.12.2007 kl. 11:38
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.