leyndarmálið afhjúpað!

Jæja, komið að því að opinbera leyndarmálið!

VALRÚN MÍN ER AÐ KOMA TIL MÍN!!

Þeir sem ekki skilja hversu merkilegur sá atburður er, hafa aldrei kynnst Valrúnu eins og ég! Og eru því ekki skoðanahæfir......

Hún verður hjá mér í nokkra daga fyrir páska, alls ekki nógu marga, auvitað, en ég verð að sætta mig við það. Vona bara að það verði vont veður laugardaginn fyrir páska og ekkert flogið. Hún verður negld niður í sófann og ég ætla að kela hana í kaf! Hnoðast í henni og knúsa hana í klessu! Oooooo hvað ég hlakka til. Stelpurnar hennar koma með og þá yngstu hef ég ekki séð í rúmlega tvö ár! Sem er agalega skrítið því hún var algjört fósturbarn okkar Halla alveg eins og Birnir minn var fósturbarn Völlu minnar. Eiginlega áttum við þessi sex börn bara saman! Ég elska Valrúnu mína eins og móður mína, systur, vinkonu og nánast eins og maka minn líka! Takmarka samt keleríið við siðsamleg mörk, áður en einhver fer að misskilja!!! :)

Ég er að taka síðustu næturvaktina þessa helgi. Þriðja vaktin alltaf erfiðust. Klukkan er rétt eitt og ég er þegar farin að þrá að komast heim í rúm! Ég hef nú reyndar verið dugleg að vinna upp verkefni fyrir skólann sem ég var að brenna inni með svo að þetta er nú ekki alslæmt!

Það er best að gá hvort eitthvað er varið í þessa ræmu sem var að byrja í sjónvarpinu.......


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gló Magnaða

Hjúkk!!!  Hélt þú værir ólétt....

Gló Magnaða, 16.3.2009 kl. 13:08

2 Smámynd: Aprílrós

Já mér datt ólétta lika í hug. ;)

Hlakka til með þér ;) ( í huga )

Aprílrós, 16.3.2009 kl. 22:25

3 Smámynd: Matthildur Ágústa Helgadóttir Jónudóttir

Ég hélt þú ætlaðir að kjósa HS í prófkjörinu  flott annars að þú skulir vera að fá vinkonu þína í heimsókn, vinkonur er bestar.

Matthildur Ágústa Helgadóttir Jónudóttir, 16.3.2009 kl. 23:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband