28.5.2007 | 13:29
Annar í hvítasunnu...
Við vorum í ferðalagi um helgina. Reyndar bara á Ísafirði. Valrún fékk húsið lánað fyrir gesti sem voru að koma í ferminguna hennar Ingibjargar, elstu dóttur Völlu. Við kúrðum á meðan hjá Ellu og Einari Björgúlfsömmu og - afa. Fermingarveislur með tilheyrandi ofáti í gær og í dag finnur maður glöggt að maður er jú ekkert annað en risavaxin meltingarfæri.
Það styttist í sumarfríið okkar. Förum út til Danmerkur eftir eina og hálfa viku. Ég hef hlakkað gríðarlega til og núna á meðan skaflarnir bráðna í garðinum mínum hugsa ég um hversu gott það verður að vera að dóla sér með fjölskyldunni í rólegheitum í þrjár vikur. Ekkert stress, engin vinna, bara notalegt.
Ég er helaum í rassinum þessa daga, það er að segja rasskinnunum, ég fæ sprautu annan hvern dag í bakhlutann með B12 vítamíni sem var víst harla lítið af í skrokknum. Mér skilst að ég verði hress eins og hross á vordegi þegar búið er að kippa þessu í liðinn. En mikið djöfulli er þetta vont! Illt skal með illu burtreka, var einhversstaðar skrifað og ég sætti mig bara við þetta möglunarlaust. Þannig séð ;)
Það er að koma fólk að skoða húsið. Það er líklega eins gott að hella á könnuna og gera svolítið huggó. Er ekki alltaf sagt að maður eigi að hafa köku og kaffiilm í húsinu þegar maður sýnir það til leigu eða kaups?
Athugasemdir
Skoða húsið?????? Ég er greinilega ekki eins vel að mér um búsetuaðstæður ykkar eins og ég ætti að vera og taldi mig vera -auðvitað! Er þetta bara svona almenn skemmtiskoðun fyrir áhugasama um hvernig þið hafið komið ykkur fyrir? Eða er verið að taka næsta Innlit/útlit heima hjá ykkur? Eða eruð þið í flutningsham? Eða...??????
Hulda
Hulda Hákonardóttir (IP-tala skráð) 30.5.2007 kl. 10:43
Hulda mín. Við ætlum að flytja til Danmerkur í sumar, ef við fáum leigjendur. Nú æfi ég mig á dönsku frösunum og reyni að finna húsnæði... það hlýtur að verða annað hvort Slagelse eða Esbjerg......
Nema jú... Ringsted kemur auðvitað sterklega til greina!
Ylfa Mist Helgadóttir, 30.5.2007 kl. 11:54
Jahjeddna! Men husk blot at når man skal med toget til Esbjerg må man først tage bussen til Slagelse.....var það ekki annars!!! Er að skreppa í ammæli til DK í næstu viku, næst skrepp ég þá sennilega til ykkar med bussen og toget.
Bestu kveðjur til ykkar
Hulda Hákonardóttir (IP-tala skráð) 30.5.2007 kl. 19:24
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.