Bloggfærslur mánaðarins, febrúar 2008

Hvaða rugl er þetta?

Þetta er bara að verða daglegt brauð? Ég er svosem ekkert á leiðinni til Ísafjarðar en Halli er það. Sjáum hvað setur. Kannski verður rutt á eftir. Ég ætla heim að halla mér, enda að fara heim af næturvakt og sé rúmið mitt í hillingum.
mbl.is Snjóflóð féll á Óshlíð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Myndir

Það eru allir búnir að fá iðrakvefið hér á heimilinu, Björgúlfur síðastur. Hann gaus í nótt. Þá er þessu lokið í bili og allir sáttir við að þetta sé frá.

Veðrið er jafn dásamlegt og hefur verið undanfarna daga og þá skoðar maður myndir!!

Hér er bekkurinn hans Birnis með sitt atriði á Árshátíð Grunnskóla Bolungarvíkur. Þau sungu: Ég á lítinn skrítinn skugga.....

Krútt

Hér er svo Íþróttaálfurinn ofvirki að syngja. Björgúlfur tók þátt í þessu, lék Nenna níska.

Latibær

 

Að lokum; bræðurnir Birnir og Baldur Hrafn  að vakna með heimilisdrottninguna á milli sín.....

Góðan daginn öll!!

 

Mánudagur á morgun og ný vinnuvika að hefjast. Vona að hún verði góð, þrátt fyrir lægðagang.

 


Myndlistarsara

Sara Vilbergsdóttir förðusystir mín, verður með sýningu á verkum sínum í Gallerý Fold og hefst hún í dag. Mig langar ótrúlega að fara enda prýða myndirnar hennar flesta veggi hjá mér. Mér skilst að sýningin hangi uppi í viku svo að sunnanlið; um að gera að smella sér!!

Mynd frá Söru


Ástkonan Austin, dusilmenni og fleira sápukennt...

Mikið er ég óskaplega fegin að maginn í mér sé að komast í samt form! Í dag er þriðji dagurinn í þessum "túristahring" mínum um lendur Gullfoss og Geysis og enn er töluverð ólga í iðrum móður jarðar. Allt stefnir þó í rétta átt og því ber að fagna með háværu húrrahrópi. Hávært húrrahróp á þessu heimili þýðir það að munnurinn fyllist af hundahárum, tíkin bókstaflega úðar af sér loðnunni og ryksugan er pokalaus. Því verður háreyðing að bíða til morguns og því er ég fegin. Pokarnir fást nefnilega bara á Ísafirði og þangað nenni ég ekki enda eiginmaðurinn heittelskaði á bílnum. Það má teljast furðulegt að enginn annar á heimilinu hefur verið í jafn nánu sambandi við snyrtinguna og frúin... ennþá. Þó var erfinginn móður sinni til samlætis heima við í gær þar sem gróf í klemmdum fingri og þurfti að bora göng á nögl og hleypa úr. Hann fékk fúkkalyf og þykir honum það hin versta píning að þurfa að gleypa slíkt og heimtar að fá að kaupa sér Candy floss vél í Vörutorgi sjónvarpsins að launum fyrir kvölina. Mamman segir þvert nei. Og það verður ekki frekar rætt.

Nýhreinsuð og fín...

Ég fór í gönguferð í dag með tíkina í unaðslegri, sólbaðaðri Bolungarvík sem hulin er til hálfs af snjó, drifhvítum og púðrandi og gekk meðal annars upp að Hóli og horfði yfir Djúpið bláa. Kíkit við hjá kærri vinkonu sem aldrei kommentar og drakk með henni kaffi. Hysjaði mig heim þegar á skall rok með skafrenningi, mokaði burt ófærurnar fyrir framan húsið og ætla nú í sund til að skola af mér svitann og stæla skrokkinn enn frekar... hef grun um að sundlaugarvigtin verði mér hliðholl eftir slæmsku liðinna daga.´

Ég er í háfleygu stuði sem sést og má mikið að blogg þetta sé ekki í bundnu máli einu saman. Það skapast af þeirri gæfi sem mér hlotnaðist í vesaldómi mínum í gær, að horfa á Jane Austin kvikmyndir í rúminu!! Þvílíkur unaður! Siðareglur aðals og alþýðu á tímum Viktoríu eru mér afar hugleiknar og mætti í einhverju af þeim lærdóm draga nú í dag þegar dónaskapur og (ég leyfi mér að segja) drulluhalaháttur óprúttinna, veður yfir og allt um kring. Sjálf urðum við hjónin nýverið fyrir slíkum og öðrum eins durtshætti að okkur kennir til mikillar ógleði af þeim sökum. Lítilmennska opinberaðist í stuttu máli og hefur það dusilmenni verið kvatt úr okkar lífi, hvorugu okkar til eftirsjár né ama. 

Nú bíða mín þrjár nýjar Jane Austin kvikmyndir, óáhorfðar, og hyggst ég taka þær með mér á næturvaktina í kvöld hvar ég mun gleypa þær í mig, verið ró og friður yfir fólki. Ef ekki þá nýti ég tímann í knús og kelerí við vistmenn og geymi ástkonu mína Austin til annarrar nætur.... InLove

Guð veri með ykkur í öllu. Alltaf.


Gullfoss og Geysir

Á heimilið eru þeir kumpánar Gullfoss og Geysir að stinga sér niður og bjóða upp á útsýnisferðir. Aðallega á klósettinu en þó víðar ef þannig ber við. Einnig fylgja hitahverir með í kaupunum.

Það er sumsé æla, dru.. og hiti.....

Ógðeslegt.


ég ætla að verða eins og Britney Spears!

Um daginn hringdi í mig kona sem sagði mér að ég væri í "tísku." Í leiðinni bað hún mig að vera kynni á Samfés, söngkeppni félagsmiðstöðvanna á Vestfjörðum en hún verður haldin á Ísafirði í kvöld. Auðvitað sagði ég já, enda afar mikill ábyrgðarhluti að vera svona mikið í tísku! Það er eins gott að ég er hætt að reykja og enn betra að ég drekki ekki áfengi nema í mikilli neyð! Það væri nú annaðhvort að ég færi að haga mér eins og ógæfu-tískudrósin hún Britney, en eins og flestir vita var hún í tísku. Það var áður en fór að síga á ógæfuhlið hennar og hlýtur því að vera að ég hafi tekið hennar sæti.

Síkretið virkar, það er ljóst!!! Ég er með hringingu á símanum hjá mér úr laginu Britney Spears, svo að í hvert sinn sem síminn hringir, sem er oft, heyrist: Ég ætla að verða eins og Britney Spears, ég ætla að verða eins og hún, úuu Beibí beibí!!!! Og í kjölfarið fæ ég lagið á heilann svo að ég er að syngja þetta allan daginn. Og ÞAÐ VIRKAR!! Ég er í það minnsta komin í tísku og Britney dottin út!!

Árshátíð Grunnskóla Bolungarvíkur var í gær og var eins sú skemmtilegasta sem ég hef farið á. Auðvitað áttu drengirnir mínir sín móment. 1. bekkur með Birni innanborðs söng lagið um Skuggann sem er svo skrítinn og Björgúlfur lék nískubrandinn Nenna í leikritinu Glanni glæpur í Latabæ. Ég var að leikstýra þessum krökkum í 8. og 9. bekk og hreint út sagt brilleruðu á sýningunni!! Ég sat á gólfinu upp við sviðið og hreyfði varir og hendur í samræmi við leikarana!! Aumingja Björgúlfur sem er á viðkvæmum aldri og þarf að dragnast með svona mömmu!! Ég var orðin frekar kvíðin síðustu dagana fyrir sýningu. Fannst krakkarnir ekki leggja nóg á sig, þau kunnu ekki textann, flissuðu í sífellu.... svo framvegis... Svo bara voru þau eins og stjörnur!! Sungu og léku eins og englar og það var ekki einn dauður punktur í sýningunni!! Húrra fyrir Latabæjargenginu í skólanum!

Og húrra fyrir Pylsugerðarmanninum....

 


« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband