60 ára, good looking.

Það er fullt tilefni til að blogga þennan mánuðinn! Í dag á nefnlega afmæli R.-faðir minn, Vilbergsson, eða Rúnar í Melabandinu eins og hann er gjarnan kallaður í daglegu tali. Held meira að segja að hann sé afmælisbarn dagsins í riti Hádegismóanna. Og ekki lýgur Mogginn. Og Rúnar er hvorki meira né minna en sextíu ára! Þar sem hann er einungis 23 árum eldri en ég, setur þetta mig í töluverða tilvistarkreppu. Svona aldurslega séð. Síðastliðin 23 ár hafa nefnilega liðið feykilega hratt!

Hér er nýleg mynd af honum, stolin af flikkersíðu Óla Kristins og er tekin á kombakktónleikum þursaflokksins fyrir skemmstu.

 

Rúnar Hartmann Vilbergsson

 

Innilega til hamingju með afmælið Pápi minn gamli og góði! Heill þér háöldruðum! :D


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Til hamingju með hann pabba þinn. Flottur karl ! Hefði haldið að hann væri svona 47 ára. Ungleg gen í ættinni þinni :)

Guðrún (IP-tala skráð) 9.2.2011 kl. 20:50

2 Smámynd: Ragnheiður

til hamingju með karlinn ;) mér finnst líka afar dularfullt að eiga pabba sem er 82 ára. Hann að vísu lítur ekki út fyrir það :)

Ragnheiður , 10.2.2011 kl. 05:31

3 Smámynd: Steinunn Helga Sigurðardóttir

til hamingju með hann elskan mín :o)

Steinunn Helga Sigurðardóttir, 12.3.2011 kl. 16:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband