Ótrúlegt!

Veðrið er ótrúlegt!DSC00795

Ég veit að flestir eru orðnir þreyttir á að heyra mig dásama veðrið í sífellu en þar sem ég stari á 20 gráðu hita á mælinum hjá mér þegar ausandi rigningu er spáð dag eftir dag þá get ég ekki orða bundist! Það hafa komið örlitlar skúrir sl. sólarhring en þess á milli hefur sólin skinið á köflum og þá verður heitt og rakt eins og maður sé staddur í útlöndum! Ég man ALDREI eftir annarri eins einmuna veðurblíðu á Íslandi í jafnlangan tíma og nú!

En mikið sárlega er farið að vanta rigninguna. Það þyrfti svona fjögurra daga úrhelli. Ég er auðvitað farin að örvænta vegna áhrifa þurrkanna á berjasprettu. Nú er víst nægur ylurinn en vætuna vantar.

Kannski ég fari bara á berjaleynistaðinn minn og vökvi hann.....

Góða Helgi. Ég er farin að búa um hálfvitana.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þórdís Einarsdóttir

Úfff, hér erum við fjölskyldan í gufubaði, 35 stiga hita og allt of miklum raka.

Væri alveg til í svona 15 gráðu hita og þurrt loft núna.  

ÞE 

Þórdís Einarsdóttir, 21.7.2007 kl. 01:43

2 Smámynd: Steinunn Helga Sigurðardóttir

hérna er líka gott veður, alveg frábært.

Alheimsljós til þín og þinna

steina frænka 

Steinunn Helga Sigurðardóttir, 21.7.2007 kl. 10:45

3 Smámynd: Gunnar Páll Gunnarsson

Hæ Ylfa. Ég sendi ykkur nokkur millibar, sú rigning sem hrjáð hefur tjallann, er á leiðinni yfir til okkar og allir eru í viðbúnaðarstöðu.

Gunni Palli kokkur. 

Gunnar Páll Gunnarsson, 22.7.2007 kl. 07:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband