Sjónvarpsgláp!

Við vorum að koma úr heiftarlegri matarveislu hjá Öldu og Birni. Svínarif, maisstönglar, bakaðar kartöflur, sætar kartöflur, salat og síðan í lokin ægileg rjóma og sykurbomba. Enn á ný rifjast upp fyrir mér að maður er EKKERT annað er heljarstór meltingarfæri! Halli er farinn á lögguvakt og ég ætla að fara að berja ungana í rúmið og leggjast yfir fyrstu seríuna af Grey´s anatomy. Vinkonurnar hafa fæstar haldið vatni yfir þessum þáttum sem eru mér ókönnuð lönd. En nú verður úr því bætt. Eini gallinn er sá að Halli fór á bílnum og í bílnum er nammipokinn sem ég fékk mér í dag, einmitt af þessu tilefni. Djö.......

Allir velkomnir til mín í sjónvarps-kúrukvöld svo lengi sem þeir eiga nammipoka ;)

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Laufey B Waage

Ég mundi nú bara poppa . En þig langar auðvitað frekar í sykurbombunammi, af því að þú komst á bragðið í dag (segi ég, fíkillinn).

Laufey B Waage, 3.5.2008 kl. 23:03

2 Smámynd: Ragnheiður Ása Ingvarsdóttir

Alltaf gaman að kíkja hér við!

Sjáumst!

Ragnheiður Ása Ingvarsdóttir, 3.5.2008 kl. 23:30

3 identicon

ohhhhh ég á ekkert nema, hundakex og mjólk, það dugar víst ekki  ég á eftir að útvega mér bókina þarna.. þúsund bjartar sólir,, eða eitthvað svoleiðis. Ég á reyndar bókina Sjö voru sólir á lofti, eftir Guðmund G. Hagalín,,,dugar það?

Halla Signý (IP-tala skráð) 3.5.2008 kl. 23:40

4 identicon

Grrrrrrr og Hann Halli bara farin á næturvakt húrra!!!  Á ég að mæta með nuddolíuna eða bara íbófen kermið??? elska að gefa þér smá hausverk.

Svífum inn í dreymandi sólalag Thelma og .........

Thelma (IP-tala skráð) 3.5.2008 kl. 23:46

5 Smámynd: Þórdís Einarsdóttir

Ég á fullt af nammi og ég á alveg eftir að horfa á Gray's. 

En vilt þú ekki bara koma hingað? Það hentar mér miklu betur !

Þ 

Þórdís Einarsdóttir, 4.5.2008 kl. 00:11

6 Smámynd: Harpa Oddbjörnsdóttir

ÓMG skiluru, Greys er, skiluru, æði! Dr McDreamy og Dr. McSteamy....grrrrrrrr........!!!!!!!! hefði sko alveg komið til þín frá Ísafirði ef ég hefði séð þetta fyrr hjá þér! Njóttu vel mín fagra

Harpa Oddbjörnsdóttir, 4.5.2008 kl. 00:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband