Ofvirkni?

Eftir síðustu færslu lá við að mér liði sem súperkonunni einu og sönnu þegar ég las kommentin. En svo datt ég þungt á minn stóra rass og raunveruleikinn blasti við. Það er fátt súper hér. Jú, ég er í námi en í vinnunni er ég í veikindafríi. Ekki er nú fyrir dugnaðinum að fara þar!

En svo ég svari nú spurningunni; já, ég tók við gítarnáminu af Birni sem nennti ekki að æfa sig og varla að mæta. Svo að nú er ég að læra á gítar. Það er ótrúlega gaman. Ég er búnað læra gamla nóa og Það blanda allir landa upp til Stranda! Þá hlýt ég að vera orðin partýhæf!

Annars er ég að fara að hátta. Ég er stödd hjá vinkonu minni sem missti bróður sinn í dag og ég ætla að gista hjá henni. En ein áminning um hverfulleika lífsins. Í einu vetfangi er allt breytt. Varanlega og verður aldrei bætt. Það er erfitt og átakanlegt. En þá er ekkert hægt að gera annað en að trúa því að síðar renni upp bjartur dagur með heiðum himni og lífið fái aftur sinn tilgang. Þetta eru hugleiðingar mínar rétt fyrir svefninn.

Valrún! Það er ekkert jafn dásamlegt og einmitt það að ganga í stillu og björtu veðri þegar sólin skín á hvítan snjóinn og heyra marrið undir skósólunum! Kuldinn kemst ekki í gegnum þykku ullarsokkana og lopapeysan góða vermir brjóstið. Nefið er það eina sem verður rautt af kuldanum og litlar nálar stingast inn í lærin þegar maður kemur inn og þau fara að hitna!

Og um helgina Valrún mín, um helgina verður tekið slátur!!!

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Steinunn Helga Sigurðardóttir

ertu að lokka hana valrúnu til þín kona !

ég samhryggist hinni vinkonu þinni missirinn.

knus til þín frænkan mín

steina

Steinunn Helga Sigurðardóttir, 1.10.2008 kl. 06:40

2 identicon

Ohhh hendurnar a kafi i hakkadri lifur og fitu. eda koldu blodi....eg fila tad i botn, ekki minnst ad skella einni sudu strax i pottinn og borda med bestu lyst tegar buid er trifa eftir langan dag i slaturgerd. Mer finnst samt otolandi hljodid i marrandi snjo i frosti, sama hvad tu segir sæta min.

Eg sendi vinkonu tinni samudarkvedjur.

 Tu ert superkona sama hvernig tad er mælt, tad er t.d. super ad gefa ser tima til ad vera hja vinum sinum sem hafa  torf fyrir tad, samanber bloggfærsluna. Loveju babe.

valrun (IP-tala skráð) 1.10.2008 kl. 11:43

3 identicon

sæl Ylfa Mist!

Þú þekkir mig ekki og ég þekki þig ekki, en þetta er skemmtilegasta blogg sem ég les, takk fyrir það og haltu áfram að blogga

Gróa (IP-tala skráð) 1.10.2008 kl. 18:01

4 Smámynd: Aprílrós

Samúðarkveðjur til vinkonu þinnar ;)

Aprílrós, 1.10.2008 kl. 22:47

5 identicon

Sæl Ylfa Mist !

 Þú þekkir mig ekki heldur, en ég les alltaf "bloggið" þitt og þú ert frábær penni....svo ertu líka harðdugleg og hvetur mann áfram í lífsbaráttunni.

Góða skemmtun í sláturgerð, það er dásamlegt að fara með handlegginn ofaní balann og hræra.........

Sigrún (IP-tala skráð) 2.10.2008 kl. 12:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband