Þar sem norðursins fegurð....

...ríkir ein ofar hverri kröfu!

Það er svo fallegt á haustin. Veðrið getur aldrei ákveðið sig, sól og rigning í sama vetfangi og fallegir regnbogar prýða himininn dag hvern. Þessi hreina og tæra haustlykt sem minnir mig alltaf á bernskuna á Dalvík þegar maður gekk í skólann og braut ísskæni af pollunum með nýju kuldastígvélunum, í nýrri úlpu og andaði gufu útí loftið. Alltaf svona einhver sérstök stemmning yfir þessari árstíð.

Ég fór í Líffæra og lífeðlisfræðipróf í morgun. Mér gekk alveg prýðilega. Nema að ég hafi bara vaðið í villu og svíma og talið mig vita öll svörin og fái svo bara þrjá! :) Held samt ekki. Mér var svo létt þegar ég sá að ég réði alveg við þetta því að í sannleika sagt svaf ég varla í nótt vegna kvíða! Allt getur maður nú gert sér að kvíðaefni!

Nú ætla ég að vaska upp, fara í gítartíma, fara með drengina mína í íþróttahúsið og leyfa þeim að svamla í lauginni á meðan ég er í sundleikfimi, henda brauði, eggjum og einhverju snarldrasli á kvöldverðarborðið og skríða svo snemma uppí með sálfræðibókina og lesa um ....viðbragðasvörun...... eða eitthvað.

Fallegt.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Dugleg - og klár :)

Hulda Hákonardóttir (IP-tala skráð) 29.9.2008 kl. 18:59

2 identicon

ég held bara að þetta hafi tekist hjá okkur

Guðmunda (IP-tala skráð) 29.9.2008 kl. 19:33

3 identicon

Auðvitað gekk þetta vel hjá þér, en ekki hvað?

Bestu kveðjur

Alla

Alla (IP-tala skráð) 29.9.2008 kl. 21:17

4 Smámynd: Aprílrós

Dugleg ertu ;) hafðu gott kvöld. ;)

Aprílrós, 29.9.2008 kl. 22:26

5 identicon

þú ert yndisleg kona Ylfa Mist.Mér þykir vænt um þig :) Hilsen fra Aarhus

Ella Rósa (IP-tala skráð) 29.9.2008 kl. 22:35

6 Smámynd: Steinunn Helga Sigurðardóttir

yndisleg færsla elsku frænka

Steinunn Helga Sigurðardóttir, 30.9.2008 kl. 07:21

7 Smámynd: Laufey B Waage

Ég segi eins og Sara - Gítartíma?? - Ertu líka að læra á gítar?

Laufey B Waage, 30.9.2008 kl. 14:05

8 identicon

Upphrópun...ertu líka að læra á gítar...eða er það Birnir sem er snilingurinn og við að misskilja allt. Ef þú  hefur tíma til að.... læra á gítar, fara í sundleikfimi, vera í námi,  sinna heimavinnandi húsmæðra slúðri með kaffi og með því, lesa á kvöldin, sinna húsverkum, fara út að labba með tíkina, stunda jóga, vinna nokkrar vaktir á skýlinu, sofa hjá Halla, elda mat, baka í nestispakkana, blogga, vera stuðningsforeldri, syngja í gospelkór, versla i Bónus..................vil ég vita á hvaða lyfjum þú ert og heimta að fá þau !!

Finnst þessi færsla æði, vekur upp minningar.En ég hins vegar þoli ekki marrið í skónum/ snjónum þegar maður gengur á vel frosnum þjöppuðum snjó...ohhh fæ bara gæsahúð.......

Var annars úti í garði  á stuttermabol að tína upp eplin sem féllu af trjánum í nótt og í dag. Er búin að baka nokkrar eplakökur og gera rauðlauks og eplachutney.

Loveja

Valrun (IP-tala skráð) 30.9.2008 kl. 14:44

9 Smámynd: Ragnheiður Ása Ingvarsdóttir

Yndisleg færsla, ofvirka nágranna.

Ragnheiður Ása Ingvarsdóttir, 30.9.2008 kl. 18:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband