Húmorískir heimilismenn.

Það sem hann Björgúlfur sonur minn getur verið mikið krútt!!

Hann er auðvitað með Facebook síðu eins og allir unglingar og mæður hans, bæði raun og stjúp, vakta þá síðu vel! og kommenta í gríð og erg, drengnum til stakrar gleði. Í gær póstaði hann statusnum; Björgúlfur; minnir á relationship status; SINGLE!!!! Og í lýsingunni á sjálfum sér skrifar hann; fyndinn, sexý og frábær faðir!!! Hahahahah, hann veit svo sannarlega hvernig á að höfða til kvennanna! Við stjúpa hans kommentuðum auðvitað og bentum honum á að það væri kannski áhrifaríkara samt að vera með aðra mynd af sér á síðunni en þá sem tekin var af honum í fermingarkyrtlinum! (ég geri mér grein fyrir að ef ég ætti stúlku, þá myndi mér líklega ekki þykja þetta jafn fyndið... en það er bara af því að ég hef svo gamaldags og ófeminísk sjónarmið sem mér leyfist að finnast þetta ÓGEÐSLEGA hlægilegt!!)

Annar húmoristi á heimilinu sem þessa dagana sem aðra beinir beittum spjótum sínum að ofholdgun frúar sinnar, Haraldur Fyrirtækiseigandi Ringsted, laumaði útúr sér einum gullmola á dögunum. Við vorum í kaffi hjá afkomanda Guðrúnar frá Lundi; Dalaprinsinum með meiru, og hans frú Dr.Splóru. Þar lá Frú Ringsted á sófa og var að spjalla við Dr. Splóru um hæð miðjudrengsins Birnis. Frú Ringsted segir sem svo; hann er náttúrulega mjög smávaxinn. Dr. Splóra svarar; jah... það hefur nú kannski eitthvað að gera með hæð móðurinnar?? Þá segir Hr. Ringsted hraðmæltur; Nei nei, hún sýnist bara hærri AF ÞVÍ AÐ HÚN LIGGUR!!!!!

Hahahahahahahahahahaha!!! Er furða þó ég hafi gifst þessu fífli! Hann fær mig til að hlæja!!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þetta hefði verið skilnaðarorsök á mínu heimili!

Hildur K (IP-tala skráð) 27.3.2009 kl. 09:41

2 identicon

hahahahhahahaha ég hló alveg upphátt ein heima hjá mér!!!! takk fyrir

lufsan (IP-tala skráð) 27.3.2009 kl. 13:48

3 Smámynd: Steinunn Helga Sigurðardóttir

frábært, líka að taka sig ekki of hátíðlega er góðu mannkostur !

góða helgi elsku frænka

steina

Steinunn Helga Sigurðardóttir, 27.3.2009 kl. 16:03

4 Smámynd: Halla Signý Kristjánsdóttir

Önnur skilnaðarorsök ekki spurning

Halla Signý Kristjánsdóttir, 27.3.2009 kl. 22:20

5 identicon

Það er alltaf jafn gaman að lesa bloggið þitt Ylfa. Og statusinn hjá syninum er snilld!! :)

Þorgerður (Majusystir) (IP-tala skráð) 28.3.2009 kl. 01:01

6 Smámynd: Aprílrós

Góða helgi elskan ;)

Aprílrós, 28.3.2009 kl. 07:33

7 identicon

Hahaha, greinilegt að sá stutti fær góð húmorgen frá ykkur báðum.

Ilmur (IP-tala skráð) 1.4.2009 kl. 23:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband